Earlie curlie í Boston
and now, the end is near, and so I....
allt svosem en það er spennandi að sjá hvort ég geti lokað
að fara upp á völl. Ótrúlegt alveg. Ég er svona að reyna að bíða
með vælið, því það verður alveg á hreinu að ég á eftir að grenja
eins og mér væri borgað fyrir það þegar ég kveð liðið..og
sérstaklega þá Jess!..Veit nú ekki hvenær ég sé hana aftur, þar sem
það er ekki auðveldast né ódýrast í heimi að kíkja í heimsókn því
Íslandi í heilt ár og búin að sakna allra rosalega!...en já bara
allt mega skrítið núna.. .. en eins og maður sagði þá er víst stutt
Carol eitthvað..nei david..hmm..
síðan ég bloggaði síðast þannig að það er ýmislegt frásögufærandi
búið að gerast. Nenni nú samt ekki að hafa þetta of langt þannig að
ég segi bara smá frá hverju.. já og aldrei að vita nema að maður
skelli bara inn nokkrum myndum í leiðinni..svona ef ég er í
Chilli Peppers tónleika í Október. Ég og Jess keyptum þessa miða
fyrir mörgum mánuðum, þannig að við vorum búnar að hlakka mikið til
að fara. Tónleikarnir voru í Albany, í NY fylki, sesagt 3 tíma
keyrsla þangað. Planið var fyrst að finna okkur hótel þarna og taka
þetta sem svona helgarferð, en við nenntum því hvorugar þar sem við
höfðum verið í NYC helgina áður. Þannig að við bara keyrðum fram og
til baka. Balir (amerísk barnfóstra, sem býr hérna núna) kom með
okkur þannig að þetta var ágætis road trip. En við semsagt sáum
tónleikana sem voru algjörlega geðveikir! Voru í risa sal, fullt af
fólki, mega stemmari. Stóðu heldur betur undir væntingum svo að 6
hvað það var gaman að sjá hana!!! Skemmtum okkur rosa vel. MIKIÐ
verslað, og gudda sem ætlaði ekki að versla neitt. En það er nú
bara einu sinni þannig að við íslendingar erum gjörsamlega kreisí í
þessum málum, og er hún gudda mín engin undantekning þar..hahah.
Borðuðum mikið ..alltof mikið reyndar..er ennþá södd!..en alltaf
gott að borða góðan mat. Kíktum á tjúttið, enda alltof langt síðan
við skáluðum í hvítvíni, fórum í trick or treat leiðangur sem
cowgirls um nágrennið með krökkunum því Gudda var hérna yfir
Halloween og bara ýmislegt annað! Skemmtum okkur svaka vel...bara
Kristínu Sigríði (fyrrverandi au pairin hérna) því hún var að koma
í 5 daga heimsókn til okkar! Rosa gaman að sjá hana. Höfðum um
margt að tala, enda mikið hægt að tala um þetta undarlega fólk sem
við höfum báðar unnið fyrir og búið hjá. Ég var nú ekki sú
skemmtilegasta í heimi samt þar sem ég var að deyja úr þreytu eftir
Guðrúnar heimsóknina, það var svo mikið stuð á okkur, þannig að ég
var meira í því að skutla Kristínu í mollin og svona. Enda var
fjárhagurinn líka ekki upp á sitt besta, þar sem ég smitaðist smá
af Guddu og verslaði alltof mikið. En Kristín þekkir sig um hérna
þannig að það var allt í lagi. En það var voða gaman að fá hana í
heimsókn og það verður pottþétt Aroma spjall þegar ég kem heim,
hjá mér í að pakka niður herberginu mínu því nýja au pairin kom í
hús fim. 9 nóv. Hún heitir Rachel og er frá Suður-Afríku. Soldið
skrítið að það sé allt í einu einhver önnur kominn hérna. Byrjað að
tala um mig sem fyrverandi au pair og þess háttar. Doldið
í heimsókn. Það var ótrúlega gaman að sjá þau. Dagný með bumbu og
Bjarki búin að stækka um heilann haus síðan ég sá hann síðast. Við
gerðum ýmislegt skemmtilegt. Versluðum að sjálfsögðu, hélt nú að
það yrði meira Dagný að draga Bjarka í búðirnar, en það var nú
eiginlega öfugt. Bjarki hreinlega missti sig í búðunum..haha..en
það er bara gaman. Við spiluðum keilu, fórum í bíó, fórum á rosa
jólahátið niðrá Fenual hall með Sunnu og Hrafnhildi, þar sem var
verið að kveikja á jólaljósunum. Eða rosa og ekki rosa, var búið að
aulgýsa þetta sem einhverja mega hátíð þannig að eftivæntingarnar
voru miklar, en tréið var nú ekki mikið stærra en það sem við erum
með heima í stofu og ljósin ekki jafn mögnuð og búið var að
hitta Sunnu og co. Þau fóru á þriðjudeginum, en þar sem þetta var
Thanksgiving helgin var þetta löng helgi, þannig að ég kom á
fimmtudeginum. Þetta var rosa kósí helgi, mikið gengið um, tekið
því rólega, borðað á ótrúlega flottum veitingastöðum...já og ekki
má gleyma One tree hill..ég, Sunna og Nína Rut (elsta stelpan)
vorum saman í herbergi og alltaf á kvöldin var One Tree Hill
maraþon...ótrúlega góðir þættir.. Familían fór svo heim snemma á
sunnudeginum, en ég og Sunna vorum eftir, tókum því rólega, röltum
5th ave. og fórum svo með flugi heim seinna um daginn. Rosa fín
vinnudagurinn minn. Ótrúlega ´skrítin tilfinning! Búin að vera að
þessu í heilt ár og svo er þetta bara búið! Er búin að vera bara að
jólagjafaversla, pakka og þess háttar um helgina og svo eru það
bara 3 dagar í viðbót og svo er ég komin heim! Veit eiginlega ekki
hvað mér finnst um þetta allt saman...dáldið mixed tilfinningar í
færsla ég veit það, hef ekki dottið í blogggírinn ennþá en þar sem
ég er búin að fá margar kvartanir ákvað ég að henda einhverju hérna
Já svei mér þá..
York í tilefni af 25 ára afmæli Jess. Ferðin hófst eldsnemma á
laugardagsmorguninn með 4 tíma rútukeyrslu. Vorum komnar í
kínahverfið í NY um hádegi , blístruðum á gulann og beint upp á
hótel sem var á besta stað í bænum, rétt við Times Sq. Við fundum
þó ekki þennan spennufiðring á leiðinni, svona eins og maður finnur
yfirleitt..er hótelið á góðum stað, gamalt/nýtt, góð
herbergi..o.s.frv. þar sem þetta var sama hótel og ég og mamma og
pabbi gistum á í mars. En það er svosem ágætt að vita að hverju
þar sem Sex and the city ferðin okkur byrjaði. Fórum semsagt í
svona 3 tíma guideaða ferð á þá staði sem þær fóru oft á í
þáttunum, borðuðum cupcakes, sátum á tröppunum hjá Carrie og fullt
annað. Rosa gaman. Og ekki eyðilagði það ferðina að við sáum einn
frægann!..já eða svona...frægan fyrir suma...sáum hann Nigel
Barker.. sæta, sköllótta dómarann í Americas Next Top Model. Hann
var úti að leika með krakkann sinn á leikvelli þar sem allt fræga
fólkið sem býr í New York fer út að leika með krakkana sína. Var nú
að vonast til að sjá einhvern frægari, eins og til dæmis Sarah
Jessica Parker það sem hún býr víst bara rétt hjá..en það verður
bara næst! Ég var nú samt soldið skelkuð á tímabili þarna því við
hópurinn semsagt stoppaði þarna fyrir framan leikvöllinn þannig að
við stóðum þarna í soldinn tíma. Og ég náttúrulega missti mig smá
þegar ég sá Nigel þar sem hann er frægur í mínum augum, þannig að
ég varð að reyna að taka mynd af honum..svo að ég stillti Jess upp
fyrir framan leikvöllinn og þóttist vera að taka mynd af henni en
hann var svo nálægt og ég þurfti náttúrulega að útskýra trikkið
mitt á ensku fyrir Jess og að ég hélt að hann hafi eitthvað fattað
þetta.. því hann fór að horfa svo skringilega á okkur og var svona
eins og hann væri svona frekar pirraður..lét konuna sína taka
krakkann og byrjaði að labba út af leikvellinum í áttina til okkur!
Leit svona út eins og þegar fræga fólkið verður pirrað út í
ljósmyndara og lemur þá ..þannig að okkur stóð nú ekki á sama þarna
í smá stund, sáum þetta alveg fyrir okkur...en svo var hann bara að
fara í bakaríið sem var þarna á næsta horni. Kannki maður sé búin
kvöldið og fórum svo út að borða á frekar fínum ítölskum
stað..allavegna var hann nógu dýr!..Undarlegt hvað maður fær alltaf
minni skammt af mat eftir því sem hann er dýrari. Keypti mér
einhvern kjúkling sem kostaði frekar mikið..og ég fékk bara
kjúkling..ekkert annað..bara nokkrir kjúklingabítar í miðjunni á
disknum..en hann var nú góður samt. Hvítvínið var heldur ekki af
verri kanntinum. Held samt að það sé eitthvað við hvítvínið í NY,
ég verð svo asskoti fjörug eftir nokkra sopa! Skil þetta ekki
alveg. Eftir matinn kíktum við á einhvern bar og fengum okkur drykk
en það var nú ekki mikið stuðið þar þannig að við fórum upp á
herbergi til að kíkja í guide bókina hennar Jess og sjá hvaða
staðir væru heitastir í NY. Það var kannski ekki besta hugmynd í
heimi því við steinsofnuðum báðar. Ég vil kenna víninu um og löngum
degi, en pabbi vildi víst eitthvað meina að þetta væri
eftir langan svefn, fórum í morgunmat, tjékkuðum okkur út og tókum
leigubíl í spa-ið. Við semsagt áttum pantað nudd og
andlitssnyrtingu. Agalega fínar á því.... Soldið skrítinn staður,
en samt allt í lagi. Einhverjar rússneskar kellingar sem ráku
þetta. Þær voru nú samt greinilega ekki orðnar varar við það að
sumarið væri á enda og farið að kólna heldur í veðri, því þær voru
með loftræstinguna á milljón..þannig að það var skítakuldi þarna
inni. Ekki alveg það besta þegar maður er í nuddi og þar af
leiðandi asni léttklæddur. Svo voru þær greinilega að reyna að
græða sem mest þarna því þegar hún var búin að "húðgreina" mig rétt
fyrir andlitssnyrtinguna sagði hún að ég væri með rosa þurra húð og
það þyrfti nú að gera eitthvað róttækt í þessu. Prófaði eitthvað
undratæki eins og hún kallaði það, og sagði að ekkert annað dygði.
Þetta hljómaði voða spennandi og ég sá enga ástæðu til að gera
þetta ekki ..en ákvað nú samt að spurja hvort þetta yrði eitthvað
dýrara en það sem ég hafði pantað upphaflega, sem var semsagt
europian facial á 85 dollara, sem by the way er bara nokkuð mikið
miðað við minn fjárhag. " Hvursu mikið kostar þessi töfra-undur
meðferð?".."hmm..látum okkur sjá..með kreminu..já og svo er það
hreinsunin..hmm..24..46...heyrðu samtals verður þetta þá 300
dollarar."...300 DOLLARAR!!!...er kellingin að grínast!!!...fyrir
þá sem ekki vita eru 300 dollarar 21 þús kall!!! "NEI TAKK"..sagði
ég heldur ókurteisislega þar sem mér var svo brugðið..."ég ætla
bara að halda mig við þessa fyrir 85 dollara!" ...Eftir þessa líka
fínu andlitsnyrtingu á 85 dollara og ágæta ´nuddið, héldum við
aftur á hótelið til að sækja farangurinn okkar. Á leiðinni sagði ég
Jess frá þessari sjokkerandi sögu og kom þá á daginn að hún hafi
fengið nákvæmlega eins sögu um sína húð. Semsagt kellingin sem var
með hana sagði það sama við hana, að ekkert myndi duga nema 300
dollara meðferð!...klikkað lið. En við vorum nú einu sinni í New
í kínahverfið. Planið var að ná rútunni klukkan 4 heim. Klukkan var
nú ekki nema rúmlega 3 þannig að við vorum á góðum tíma og ætluðum
að fá okkur að borða áður en´rútan færi. En þar sem traffíkin var
hrikaleg, tók ca 40 mín að keyra þangað. Við náðum þó að kaupa miða
í rútuna, en eini maturinn sem við gátum keypt voru ógeðslegar
pulsur í einhverjum pulsu vagni þarna...ég var búin að heita mér
því eftir síðustu pulsu sem ég borðaði hérna, sem var einmitt í New
York í febrúar, að ég myndi aldrei gera það aftur, en ég átti víst
engra annarra kosta völ. Jú nema náttúrulega deyja úr hungri. Eftir
að hafa kyngt síðasta bitanum með klýgju (skrifar maður það
svona?), ennþá sársvöng, ákvað ég að hringja heim til íslands og
heyra aðeins í fólki. Þá var matarboð heima hjá mömmu og
pabba...stórfamilían þar og heyrðu þau voru nýbúin að klára
lambalærið, með sósunni og brúnuðu kartöflunum, og salatinu.og....
"við erum bara að fara að byrja á desertnum"...Já alltaf gaman að
hringja heim..;)...uss ef það verða ekki bara jólin á hverjum degi
ammælisdinner með Sunnu á Cheescake um kvöldið. Já Cheescake
ég fór á núna um helgina, en þar sem þessi saga er nógu löng í
bili...enda skrifuð í smáatriðum...ó mæ..læt ég það bíða betri
hentirðu útigrillinu?
heilög í mínu lífi. Það er, ég hef haft það sem markmið og
reglu að gera eitthvað skemmtilegt á fimmtudagskvöldum.
Helgin á næsta leyti og kominn smá fílingur í mann. Áður en
ég kom hingað til Bandaríkjanna voru þessi kvöld oft kennd
við hvítvínsglas í góðra vina hópi, en þar sem vekjaraklukkan
hér byrjar að hringja klukkan 6:00 alla föstudagsmorgna hef
ég ekki lagt í neitt sterkara en Diet Coke og kannski einn
lítinn bíópopp með því. Sem var einmitt planið okkar Sunnu á
hvað sýningarnar væru og hvaða bíó sýndi þessar myndir (hér er
nefninlega allt morandi í litlum bíóum út um allt) Vorum komnar með
nokkrar myndir í mismunandi bíóhúsum, en enduðum svo á því að finna
tvær sem komu til greina. Ég sótti Sunnu og við vorum nokkuð
tímalega í því þannig að við ákváðum bara að taka rúnt og spjalla
myndina við vildum sjá og varð fyrir valinu grín/sport mynd sem
sýnd var í Harvard Sq. bíóinu. Vorum komnar þangað nokkrar mínútur
fyrir sýningu en komust þá að því að myndin var ekki sýnd þar.
Ha!..þetta var skrítið. Við rugluðum semsagt saman bíóhúsum. Myndin
sem við ætluðum að sjá var á Fresh Pond sem var í sirka 7 mín
keyrslu frá. Við vorum nú ekki alveg vissar fyrst hvort við ættum
að fara þangað þar sem myndinn var að byrja, en ákváðum bara að
drífa okkur svona þar sem myndin byrjar aldrei á réttum tíma vegna
auglýsingna. Við brunum af stað og í mikilli fljótfærni gleymdi ég
einni beygju. Við töldum okkur ekkert þurfa að snúa við, við myndum
bara halda áfram og vorum nokkuð vissar um að við vissum hvar við
værum og hvert ætti að fara. Eftir um það bil 15 min keyrslu
áttuðum við okkur á því að við vissum ekkert hvar við vorum. Sáum á
skiltum að við vorum komnar í Belmont sem er annar bær. Héldum samt
áfram að keyra, þar sem við vorum farnar að sættast á það að við
myndum ekki sjá neina bíómynd þetta kvöldið, og eftir dágóða stund
þar sem ekkert varð um bíópopp og diet coke,´ákváðum við bara að
fara í Shaws supermarkaðinn, kaupa okkur ís og fara heim til Sunnu
og horfa á eins og einn Friends þátt. Þegar þangað var komið áttaði
ég mig á því að klukkan að að ganga 11 þannig að í staðin fyrir að
fara heim til Sunnu og borða ísinn yfir Friends , sem yrði
væntanlega fleiri en einn þáttur ef ég þekki okkur rétt, breyttum
við planinu aðeins og borðuðum bara ísinn í bílnum yfir spjalli,
svona svo ég yrði nú komin heim fyrir miðnætti því eins og áður
útvarpinu farið að blikka. Hmm... skrítið. Pældum ekkert mikið í
því, slökktum bara alveg á bílnum, sumsé ekkert útvarp. En þegar
kominn var tími til að halda heim gat ég ekki startað bílnum.
Heyrðist bara mjög skrítið hljóð! hver andsk.... er að bílnum??!
Okkur datt strax í hug rafmagnsleysí en hljóðið var svo skrítið og
hægt var að kveikja ljósin inn í bílum og á mælaborðinu þannig að
okkur fannst þetta heldur undarlegt. En hvað áttum við að gera?
Klukkan rúmlega 11 sem þýðir að allir "venjulegir" ameríkanar
farnir í háttinn og þeir sem voru þarna á planinu urðu allir hálf
krípí svona þegar við fórum að pæla í þeim. Og engir starkaplar
voru í bílnum þannig að við vorum bara í djúpum. Hvern gátum við
hringt í? .. hmm...lögguna?..jaaá jafnvel..ekki 911 samt..ekki
alveg neyðartilvik. Hmm.... Ef þetta hefði verið á íslandi hefði
þetta verið nó problem. Fullt af fólki sem hægt væri að hringja í
og íslenska væri töluð. Við höfðum til dæmis ekki hugmnd um hvernig
við ættum að segja startkaplar á ensku..já og rafmagnslaus.. nó
elektríssiti..eða át off batterí? ..eftir miklar vangaveltur og
nokkuð góða staðfestingu á að þetta væri rafmagnsleysi fór Sunna
inn í Supermarkaðinn til að athuga hvort einhver þar gæti hjálpað
okkur. Fékk þær upplýsingar að það væri fyrirtæki sem við gætum
hringt í ..Phils Towing..þeir semsé sjá um þetta bílastæði. Við
hringdum í Phil og náðum að útskýra hvað væri í gangi með
einstakelga lélegri ensku og kom hann stuttu seinna og gaf okkur
start. Þetta prósess tók um það bil klukkutíma þannig að ég var
ekki komin heim fyrir miðnætti þetta mistæka kvöld! En sko þvílík
heppni að við vorum á þessu bílastæði því hann Phil vinur okkar
og pabbi komu í heimsókn í lok september, það var rosalega gaman
hjá okkur. Gerðum fullt af hlutum, fórum í duck tour, upp í
prudential turninn, sáum blue man group, versluðum handklæði,
versluðum föt, versluðum jóladót..hahah...fórum rosa fínt út að
borða og buðum Sunnu og Jess með, gengum um og nutum sumarblíðunnar
James Blunt!!!..Geðveikir tónleikar í alla staði! Stóð heldu betur
laugardag. Ég og Jess ætlum að skella okkur þar sem hún verður 25
jæjajá..
ýmislegt að fara að gerast. Nenni ekki að skrifa nokkra blaðsíðna
í hennar stað 17. ágúst, fínt alveg hreint.. löngu komin með nóg af
einhverju Rocking Horse Ranch hóteli fyrst í tvær nætur. Þetta var
svona resort, þar sem allt er borgað fyrirfram og fullt um að vera,
til dæmis fór ég á hestbak en leiddist það reyndar svo hrikalega að
ég átta mig ekkert á fólki sem nennir þessu daginn út og inn..ég
dansaði línudans sem er heljarinnar fjör alveg hreint, skaut úr
riffli..átti ekki mikið við mig, upplifði ekta ameríska
varðeldastemningu þar sem krakkarnir grilluðu sér sykurpúða og
allir sungu Old McDonald ásamt hásum, gömlum gítarleikara..gerist
varla mikið amerískara, klifraði upp svona klifurvegg..aldrei gert
það áður og það er bara helv..erfitt! Og margt margt
Eftir þetta var förinni haldið til NY fylkis í eitthvað lítið þorp
þar sem amman og afinn (foreldrar Carl) búa. Vorum þar í 5 nætur.
Gerðum ekki mjög mikið þar sem það var rigning nánast allan tímann,
einhverjar leyfar af fellibylnum sem var á Flórída. En við fengum
nú smá sól svona inn á milli. Fórum þá út á bátinn sem þau
eiga..voða fínn bátur ...já og haldiði að ég, skræfan sjálf, hafi
ekki bara farið á jetsky!!! og það var nokkuð skemmtilegtbara.
..jájá.. Svo spilaði ég botsía alveg á fullu, hafði einmitt aldrei
gert það áður en það er hörkustuð skal ég ykkur segja. Alls ekki
bara fyrir gamlingja..það er bara bull..! Svo var það 7 tíma
keyrsla heim. Get ekki sagt að mér hafi fundist slæmt að komast
heim enda komin með nokkuð mikið nóg af familíunni. En ágætis ferð
heimsókn!!!..2 DAGA!!! get bara ekki beðið..planið að gerast svona
ekta túristar og gera allt sem þeir gera hér..fara í Duck tour sem
er svona sight seen ferð bæði á sjó og landi, fara í prudential
turninn, á blue man group sýninguna, já og mollin að sjálfsögðu og
okt.!!!..getum kíkt á "kaffihús" saman!!!..alltof langt síðan
síðast..og kannski hún kenni mér að tjútta aftur svona áður en ég
frá Suður-Afríku. Hún vildi komast hingað sem fyrst þannig að Carl
og Sharon gerðu samning við mig um að við myndum vinna saman í 3
vikur, ég semsagt að kenna henni allt og svona og svo fengi ég
síðustu vikuna mína frí!!!..ekki amalegt það! Verð með félagsskap
skiptið!!!...algjör snilld.!!! Getum kíkt saman í jólagjafainnkaup
eftir er hér í Boston!..Farið að styttast alveg svakalega í
heimför!!!...aðeins 2 og hálfur mánuður!!!..já eða ca 80 dagar eins
Myndir!!!
að setja inn myndir frá Californíu. Reyndar bara Hollywood því ég
hef ekki meiri tíma í bili þar sem ég er að vinna og er búin að
vera að vinna eins og brjáluð manneskja síðustu 3 vikur, sem er
einmitt ein afsökun fyrir bloggleysi. Hinar tvær eru bilað internet
gott fólk. Alveg einstaklega leiðinlegt að skrifa blogg sem enginn
kommentar á og taki þeir til sín sem eiga ( er það ekki sagt
ekki sett þetta allt í sama albúm, skil það ekki, en það er svo
framhald - San Fransisco
tóku rútu- og lestar pælingar. Það var semsagt rúta frá
flugvellinum að lestarstöðinni, þar þurftum við að finna út hvar
við værum og hvert við værum að fara o.þ.h. en við fundum nú út úr
stoppuðum nánast down town SF og fundum út að hótelið okkar var
ekki nema nokkrum húsalengjum frá. Þannig að við ákváðum að labba
þetta bara. Eins og áður, vissum við ekkert út í hvað við vorum að
fara. Þ.e. hvernig hótelið var og hvaða hverfi það væri í. En þetta
leit allt saman ágætlega út þarna fyrst, en fór svo hraðversnandi
með hverju skrefi sem við tókum. Endalust mikið af útigangsfólki
ýmist betlandi pening eða kallandi á eftir okkur. Byggingarnar
gamlar og ljótar, göturnar óhreinar og allt svona frekar
óhugnalegt. Jess benti okkur nú á seinna að þetta væri ein af fáum
götum SF sem að maður ætti ALDREI að ganga! Hótelið var nú svo ekki
upp á marga fiska. Í frekar slæmu hverfi, eldgamalt, skrítin lykt
og skrítið fólk! En það var ekkert við því að gera nema bara gera
gott úr hlutunum (pollýönnu leikurinn góði) þannig að við komum
eftir ferðalag dagsins. Við vorum búnar að heyra að það væri frekar
kalt í SF sérstaklega á kvöldin þannig að við smelltum okkur í
síðbuxur og langerma gollu, töldum okkur vera vel búnar þannig, en
svo var nú aldeilis ekki. Ætluðum að taka strætó niðrá Union Sq.
biðum í ca.15 mín en þá vorum við bara alveg að krókna þannig að
við veifuðum bara á næsta taxa til að komst inn í hlýjuna sem
fyrst! bíddu bíddu vorum við ekki í Californíu!!!???...við vorum
ekki alveg að skilja þetta. En við náðum nú á okkur hita, borðuðum
og fórum svo upp á hótel að sofa. Ég var nú ekkert alveg viss um
hvað mér fannst um SF á þessum tímapunkti. Skítakuldi, lélegt hótel
Carl og Sharon voru nefninlega i SF í maí og sáu svona bíla út um
allt og fannst þetta svo sniðugt að þau ákváðu að splæsa á okkur
heilum degi í þessu! Eins og fyrri daginn vissum við nú ekkert út í
hvað við vorum að fara né hvar þetta var. En við erum fluggáfaðar
svona opinn. Minnti mig á rafmagnsbílana í fjölskyldu garðinu, nema
fyrir tvo fullorðna. En þeir virkuðu semsagt þannig að það var
svona gbs tæki í úvarpinu sem sagði okkur hvert við áttum að fara
allan tímann og einnig hvað væri merkilegt í kringum okkur. Þannig
að þetta var svona eins og að vera í sight seen ferð nema að við
fengum að stoppa þegar við vildum eins lengi og við vildum og
þurftum ekki að stoppa á stöðum sem okkur þótti ekki merkilegir.
Algjör snilld! Og hrikalega fyndið því þessir bílar voru svo litlir
og gulir að fólk tók eftir okkur hvar sem við vorum, þar sem við
keyrðum bara á aðalgötunum. Og svo vorum við líka með þessa
einstaklega fallegu, stóru hjálma sem gerðu okkur ennþá meira kúl.
Var hálf kjánalegt í fyrstu, en síðan vandist þetta allt saman og
ekkert óþægilegt að láta fólk stoppa, benda og hlæja af sér. Bara
fyndið. En eins og ég sagði þá var þetta algjör snilld og við sáum
bara nánast allt sem áhugavert var að sjá þarna. Golden gate
brúnna, fullt af minnismerkjum, keyrðum um golden gate garðinn (sem
er stærri en Central Park, sem er mjög ´stór!), snígluðumst upp á
twin peaks (eða hvernig sem það er nú skrifað) og sáum þaðan
ótrúlegt útsýni yfir alla SF, keyrðum down town og meðfram
strandlengjunni og ýmislegt fleira. Tókum allan daginn í þetta enda
sól og ´sumarblíða, eitthvað annað en kvöldið áður! Vorum komnar
upp á hótel um 6 leytið. Eftir þennan frábæra dag hafði skoðun mín
Jess. Hún var semsagt að fljúga frá Boston og var komin örugglega
um 10 leytið upp á hótel. Henni leist nú ekkert allt of vel á
hótelið. Sérstaklega ekki þar sem hún hafði lesið í guide bókinni
sinni að maður ætti aldrei að beygja til vinstri þegar gengið væri
út um hótelið því þá væri maður bara kominn í algjört krimmahverfi,
en að beygja til hægri væri í lagi. En við vorum nú ekkert langt
frá góða hverfinu þannig að þetta var allt í lagi. Fórum bara í
Union Sq. í sól og einstaklega góðu veðri. Ekkert plan þennan dag
en við ákváðum að fara á Fisherman´s wharf, sem er við sjóinn og
roslegt túristasvæði, skoða okkur þar um og kaupa miða í Alcatraz
fangelsið. Okkur fannst tilvalið að taka svona trollí bíl þangað,
enda rosalega San Fransisco legt, en eftir um það bil 20 mín. bið á
stoppustöðinni og ekki miklar líkur á að komast með í bráð ákváðum
við að rölta á næstu stoppustöð og sjá hvernig staðan væri þar. En
það var það sama þar þannig að þá var það bara næsta. Nei sama
sagan þar. Að lokum gáfumst við bara upp og ákváðum að rölta þetta
bara allt saman, við værum hvort sem er byrjaðar. Komst betur að
því hvursu hrikalega lélegu formi ég er í því ef þið vitið það ekki
þá er SF öll í brekkum upp og niður þannig að þetta tók á. En
áfangastað fórum við strax í röðina fyrir miða í Alcatraz. Eftir 20
mín bið þar fengum við þær upplýsingar að uppselt væri fram á
þriðjudag!!! og við vorum þarna á fimmtudegi og að fara heim á
laugardag! Vorum greinilega full bjartsýnar því pælingin var að ef
þeir ættu laust pláss innan við hálftíma myndum við fara í dag,
annars bara á morgun! Fengum reyndar líka þær upplýsingar að hægt
væri að kaupa svona standby miða sem virkaði þannig að við myndum
bara bíða í röð og vonast til að fólk sem ætti miða í ferjuna myndi
ekki koma. Við vorum of seinar að kaupa standby miða þennan daginn,
minjagripaverslunum og þess háttar sem við gleymdum okkur í,
reyndum svo aftur að komast í svona trollí bíl eða vagn réttara
sagt sem tók sinn tíma, en án árangurs þannig að við tókum leigubíl
niðrá financial district. Þar voru tvær byggingar sem Jess langaði
svakalega til að sjá. Eitthvað sem hún hafði lesið um í guide
bókinni. Okkur Stínu var svosem sama, ekkert að missa okkur yfir
þessu, en þetta voru nú flottar og merkilegar byggingar engu að
siður. Man nú ekkert hvað þær heita reyndar, en það er aukaatriði.
Eftir það gengum við svo upp á hótel, sem var nú alveg smá spölur
þannig að þessi dagur var ágætis líkamsrækt alveg hreint. Þegar á
hótelið var komið fórum við bara að gera okkur reddý rólega því
planið var að borða góðan mat á góðum veitingastað og kíkja svo á
millidýra stað og fengum okkur rosalega góðan mat og skoluðum honum
niður með hvítvíni. Vorum nú orðnar ágætlega hressar svona eftir
matinn, sérstaklega þá Jess sem var farin að segja misfallegar
sögur af sér og sínum í gamla daga. En það var nú bara stuð. Eftir
matinn fórum við svo bara á pöbbinn við hliðiná þar sem var live
pianó stemning. Það hittum við margt miðskemmtilegt fólk. Jess
þóttist vera íslendingur og heita Johana eins og hún bar það fram
og við þóttumst vera í frægri íslenskri hljómsveit!..já..alltaf
gaman að rugla aðeins í þessum ameríkönum! Þegar lokaði, eða
Alcatraz klukkan 8:45 því þá byrjuðu þeir að selja standby miðana.
Það gerðist ekki. Vöknuðum um 9 leytið og vorum komnar um 10. Þá
var komin röð lengst út á götu sem við þurftum að bíða í. Vorum
reyndar gáfaðar þar sem Jess fór og beið í standby röðinni en við í
miðaröðinni þannig að við ættum kannski einhvern sjéns á að komast
með. Loksins var röðin komin að okkur og fengum við síðustu 3
stanbymiðana sem seldur yrðu þennan daginn!´hjúkk! Við hefðum betur
vaknað aðeins fyrr því við vorum næstaftastar í röðinni, með ekki
nema ca 80 manns á undan okkur!!! ákváðum nú samt að bíða og sjá
hvernig þetta færi allt saman. Þetta leit nú vel út til að byrja
með. Voru að hleypa 20-30 manns með í hverja ferð og það var farið
á hálftíma fresti. En stundum voru það ekki nema 3-4 sem komust sem
gerði það að verkum að við biðum þarna í röðinni í 4 klukkutíma!!!
úff. Í steikjandi sól. Þetta leið nú reyndar frekar hratt enda
komin smá stemning í röðinni. Maður var náttúrulega farin að þekkja
fólkið í kringum sig ágætlega vel og svona. Vantaði bara gítarinn
magnað að sjá. Semsagt fangelsi út á eyju 10 mín frá SF sem var
notað í gamla daga og allt er eins og það var eiginlega. Eða
semsagt við gátum séð hvernig klefarnir voru og svoleiðis. Og svo
fengum við svona headsett þar sem var bæði leiðsögumaður að segja
frá hvert við ættum að fara og hvað við vorum að skoða hverju sinni
og svo líka viðtal við fyrrverandi fanga þar og live upptökur af
þeim þegar þeir voru í fangelsinu! Rosalegt alveg. Ef þið farið
nokkuð uppgefnar eftir þennan langa dag! lögðum okkur bara aðeins
og fórum svo seinna um kvöldið út að borða. Eftir matinn fórum við
svo upp á hótel, þurftum að pakka og gera allt klárt því Stína var
að fara snemma næsta dag í flug og ég og Jess vorum að fara í
vínsmökkunarferð klukkan 8 um morguninn þannig að við þurftum að
snemma og vorum farnar út rétt fyrir 8. Þá kom svona mínírúta að
sækja okkur ásamt 13 aðra frá mismunandi hótelum og svo var lagt af
stað yfir í vínhéruðin. Ég man nú eiginlega ekkert hvað þetta
heitir þar sem við vorum en við byrjuðum á því að stoppa í
einhverjum skógi, þar sem voru rosalega sérstök, risastór tré
eitthvað sem vínið var unnið með. Eftir klukkutíma þar tók smá
keyrsla við á fyrsta vínsmökkunarstaðinn. Og það var sko sjúklega
heitt þennan dag, alveg hrikalega. Það var nefninlega hitabylgja að
byrja þarna. En allavegna´þá fengum við að smakka fullt af góðu
víni, lærðum helling og fengum svo að drekka það allt. Ég hélt að
maður ætti alltaf að spýta út úr sér víninu í svona smökkun en
greinilega ekki þarna. Þannig að fólk var alveg komið í smá stuð
þarna í rútunni eftir þetta, enda kannski hitinn að hjálpa til. Svo
stoppuðum við í einhverjum bæ og borðuðum hádegimat, því öll
keyrslan tók svo langan tíma. Eftir hádegismatinn stoppuðum við svo
á tveimur öðrum vínframleiðislustöðum. Ég, ásamt mörgum öðrum gat
þó ekki drukkið þetta allt saman útaf hitanum. Enda sagði guideinn
okkar að við ættum alls ekki að drekka ef hitinn væri að drepa
okkur því þá myndi bara líða yfir okkur. En ég smakkaði nú helling
samt og það var farin að myndast rosa góð stemning í hópnum. Allir
voða spenntar að heyra um Ísland. Er alveg búin að komast að því að
við búum á mjög merkilegu landi! En þetta var rosalega fróðlegt og
skemmtilegt. Núna veit ég af hverju ég til dæmis hristi glasið áður
en ég drekk vínið!..gerði það meira svona upp á punt hér áður fyrr
náttúrulega ekki með neitt herbergi þannig að við ákváðum bara að
drífa okkur upp á völl þó að flugið okkar væri ekki fyrr en klukkan
10:35..betra að hanga þar en í lobbíinu á hótelinu. Tók líka sinn
tíma að fara í lestina og rútuna og svona og vorum komnar bara á
ágætis´tíma upp á völl, fengum okkur kvöldmat og ´svo var bara
komið að fluginu. Flugum semsagt yfir nóttina heim, sem var ágætt,
nema miðjusætið sem ég var í var ekki alveg að gera sig, alltaf
erfitt að finna góða sofustellingu í því, en ég svaf nú samt
aðeins. Lentum svo í Boston klukkan 7 á Bostonískum tíma og svo
svaf ég bara allan sunnudaginn! Enda dauðuppgefin eftir hrent út
þannig að ef þið sjáið málfræði-og/eða stafsetningavillur þá
úff úff úff
3:15 vöknuðum við Kristín hressar og sprækar reddý fyrir
Californíu. Vorum komnar upp á völl um 4:30 og áttum flug klukkan
6:15. Spennan alveg að drepa okkur en þreytan sagði nú líka aðeins
til sín, enda 6 og hálfs tíma flug framundan. Náðum nú samt að sofa
mestmegnis af ferðinni. Ekki vel þó, enda sefur maður aldrei vel í
flugvélum, en ágætlega þó. Lentum á Long Beach flugvelli um 9
leytið á Californískum tíma og þá var það spurningin hvernig við
ættum að koma okkur til Hollywood. Eins og þið sjáið kannski á
blogginu hérna fyrir neðan þá var ekki mikið um skipulag fyrir
þessa ferð þrátt fyrir nægjan fyrirvara. Eina sem við vissum var að
við áttum pantað á hóteli sem hét Hollywood orchid suites,..meira
vissum við ekki um þessa ferð. En það var ekkert annað að gera en
bara setjast upp í leigubíl, vissum reyndar að keyrslan til
Hollywood tæki um klukkutíma, þannig að taxinn keyrði okkur á næstu
rútustöð. Mikil spenna var um hvort við fengjum miða í rútuna sem
færi eftir klukkutíma, þar sem við nenntum ekki að bíða til hádegis
og einnig vegna þess að þetta var klukkutíma ferð en næsta rúta tók
sér góða tvo tíma í að koma sér til Hollywood. Við vorum heppnar í
þetta sinn og fengum miða í 10:30 rútuna. Tók reyndar aðeins meiri
tíma en áætlað var þar sem við þurftum að skipta um rútu á miðri
leið og enn og aftur vorum við heppnar að komast með því það skipti
víst ekki máli hvort maður ætti miða eða ekki, það voru bara
stóðum þar á rútustöðinni með farangurinn okkar og vissum varla í
hvorn fótinn við áttum að stíga. Smá svona fílingur eins og við
værum ungar leikkonur að reyna að fara að meika það í Hollywood. En
svo var nú ekki. Eftir miklar pælingar á korti komumst við að því
að hótelið okkar var skammt frá þannig að við röltum þetta bara.
Okkur til mikillar ánægju var leiðin á hótelið Hollywood Búllevard
(hef ekki hugmynd um hvernig þetta er skrifað) einnig þekkt sem
"Walk of fame" semsagt gatan með öllum stjörnunum á!!! smá
missingur þegar við gegnum þarna um, ekki mikill þó þar sem við
vildum drífa okkur á hótelið, skila töskum og sjá hvort þar væri
búanlegt. Eftir smá meiri kortapælingar komumst við nú loksins á
lítið hótel með sundlaug og fínu fólki. Við áttuðum okkur þó ekki á
því hvað þetta var gott hótel fyrr en við röltum út, í þeim
tilgangi að fá okkur hádegismat á meðan við biðum eftir herberginu.
Við vorum 10 SKREFUM FRÁ ÖLLU!!!..(doldið ofnotuð setning í
ferðinni, gátum bara ekki trúað þessu og þurftum þar af leiðandi
sífellt að minna okkur á það) Við semsagt vorum við hliðina á Kodak
theater, þar sem óskarinn fer fram, rétt hjá frábæru útsýni yfir
Hollywood skiltið, Hollywood Búllevard, Handa- og fótaförunum frægu
(veit ekki hvað það heitir). Þetta var bara í einu orði sagt
hótelherbergið, sem já var bara eins og best væri á kosið, kíktum
við í sólbað og sundsprett og svo um kvöldið röltum við um svæðið.
Fullt af lífi og fjöri. Fengum okkur að borða og vorum svo bara
komnar nokkuð snemma upp á hótel enda tímamismunur að segja til sín
miða daginn áður í sightseen ferð. Byrjuðum semsagt á því að keyra
um svæðið í svona opinni rútu (Kristínu fannst það alveg magnað!).
Við sáum alveg heilan helling, walk of fame, kodak theater,
hollywood merkið, paramount stúdíóið, cbs stúdíóið, og margt margt
fleira. Ýmislegt reyndar sem við höfðum séð þar sem hótelið okkar
var svo nálægt (muniði aðeins 10 skref!!!) en samt gaman að fræðast
betur um þetta allt saman með leiðsögumanni. Eftir þessa sightseen
var komið að annari sightseen, aðeins öðruvísi reyndar, það fór
fram í mínirútu og vorum við að fara að sjá hús fræga
fólksins:o)..já sumum finnst það kannski ekkert merkilegt en okkur
þótti það ákaflega merkilegt. Þannig að nú vitum við semsagt hvar
Will Farrel, Charlize Theron, Ben Stiller, Sylvester Stallon já og
svo ég tali nú ekki um hann Dr. Phil vin minn og margir fleiri eiga
heima. Nokkuð töff myndi ég segja. Reyndar oft sem við sáum ekkert
annað en runna og girðingar þar sem þetta fólk, af einhverri
óskiljanlegri ástæðu, vill loka sig inni svo klikkaðir túristar
eins og við fáum ekki að sjá það öllum stundum..undarlegt, finnst
má nú bara eiginlega segja að við höfum séð hann. Við vorum semsagt
að keyra fram hjá húsinu hans þar sem einungis sést í tré og hlið,
en akkúrat þegar við vorum að keyra fram hjá opnaðist hliðið.
Bílstjórinn snar stoppaði ..hliðið er að opnast..HLIÐIÐ ER AÐ
OPNAST..VERIÐI TILBÚIN MEÐ MYNDAVÉLINA..HLIÐIÐ ER AÐ
OPNAST!!!!!...bíll keyrir hægt í gegnum hliðið...blæjan er
niðri...BLÆJAN ER NIÐRI GOTT FÓLK...hver er þetta..er þetta Tom..ER
ÞETTA TOM..EÐA KATIE..NEI ÞETTA ER TOM...eða hvað..neeii..heyrðu
þetta er bara einhver ljóshærð kona með sólgleraugu ..frábært! úff.
Missti mig aðeins þarna, hélt í nokkrar sekúndur að ég væri eksjúlí
að fara að sjá Tom, en nei nei ekki í þetta skiptið. Kannski
verlsar fötin sín, þar er til dæmis búð sem þarf að panta tíma í,
til að koma að verlsa. Ég fór nú ekki..eitthvað sagði mér að ég
myndi nú varla geta keypt mikið fyrir 20 dollarana sem ég átti í
vinsamlegast beðin að yfirgefa í Pretty Woman. Sáum líka hótelið
sem var í þeirri mynd, stigann sem Richard Gere klifrar upp í í
lokin og hornið á Hollywood búllívard þar sem hann pikkaði hana upp
hvað gera skyldi næst þannig að við fengum okkur bara hádegsmat (á
California pizza kitchen, hvað annað) enda klukkan rétt að verða
eitt. Fórum svo upp á hótel í smá afslöppun og fór ég að lesa guide
bókina mína góðu, um hvað væri hægt að gera. Fann þar mjög
áhugaverðan skoðunartúr um Warner Bros stúdíó þar sem maður fengi
meðal annars að sjá leikmuni úr FRIENDS...og þið sem þekkið mig
vitið að ég er forfallin FRIENDS aðdáandi. Stína hringdi og komst
að því að síðasti túrinn væri farinn klukkan 4 og var klukkan þá
2:30. Við hlupum út, þar sem þetta stúdíó er í öðrum bæ. Reyndum að
fá einhverjar upplýsingar hjá vitlausri konu í lobbíinu um það
hvernig best væri að koma sér þangað, hún vissi lítið, vissi þó að
best væri að taka lestina, sem við gerðum en þegar við komum í
bæinn vissum við ekkert hvert átti að fara. Höfðum fengið þær
upplýsingar að þetta væri aðeins 5 mín labb, en þegar við spurðum
gangandi vegfaranda til vegar sagði hún okkur að þetta væri
allavegana 20 mín ganga en var ekki alveg viss í hvaða átt þó.
Klukkan tifaði, aðeins 45 mín til stefni því að svona lestervesen
tekur alltaf sinn tíma. Ákváðum að taka bara taxa. Þurftum reyndar
að bíða helling eftir honum og var klukkan orðin 3:30 þegar við
loksins náðum einum, sem var svo einhvernveginn ekki alveg viss um
hvert hann var að fara en endaði þó á réttum stað kl. 3:50, við
hlupum inn og hvað haldiði..jájá ennþá til miðar í túrinn!..fjúff.
Þið trúið því ekki hvað mig langaði mikið í þessa ferð. Hefði
virkilega grátið bara hefði ég ekki komist með. En svo var nú
vonbrigðin fyrr um daginn, að við sáum eina fræga þarna á meðan við
biðum. Eða kannski ekki fræga en svona semífræga, já eða meira
kannski svona þekkta..hmm....jæja við sáum hana Jamie Luner. Hún
reyndar að því eftir google athugun að hún hefur leikið í fullt af
þáttum og myndum og svona, bara ekki búin að "meikaða"ennþá. En það
dæmis svona gervigötu þar sem er búið að búa til götu bara með
gervihúsum sem líta út eins og alvöru hús. Þar var til dæmis tekið
upp atriðið í Friends þar sem Pheobe er að heimsækja pabba sinn í
fyrsta skipti, leggur fyrir utan húsið hans þar sem er brjálaður
hundur og hún keyrir óvart á hann. Svo eru Gilmore girls þættirnir
teknir upp þarna. Þarna var líka gervi miðbær og ýmislegt. Við
fengum að sjá bílana sem notaðir voru í Batman, Scoopy Doo, Harry
Potter o.fl. Fengum að sjá hvar allir leikmunir eru búnir til
o.þ.h. Sáum George Lopez stúdíóð þar sem þeir þættir eru teknir
upp. Fórum´inn í ER spítalann (Bráðavaktina) og sáum allt saman
þar. fórum inn á leikmunasafn þar sem var fullt af allskonar dóti,
meðal annars frá FRIENDS!! hurðin hennar Monicu (sem við
snertum..var sko svona bannað að snerta safn og fullt af vörðum..en
við´"rákumst" aðeins í hurðahúninn), eldhúsborðið og stólarnir,
fúsboll borðið, hvíti hundurinn hans Joey, science boy, gosið sem
Pheobe fann þumalinn í, ísskápurinn hennar Monicu (sem við rákumst
líka alveg óvart í) og margt fleira!!!...hljómar kannski ekki
merkilegt fyrir ykkur sem ekki dýrkið Friends eins og ég..en jii
þetta var eins og himnaríki fyrir mig!!! Heyrðu og hvað
haldiði..Við' fórum inn í Central Perk stúdíóið (kaffihúsið) þar
sem þau eru alltaf og fengum að setjast í sófann!!!..í FRIENDS
SÓFANN!!!!!!!...AAAHHHHH..það var næstum því búið að líða yfir mig
ef þið verðið stödd í Hollywood einhvern daginn að kíkja á þetta.
viðburðaríkan og frábæran dag. Fengum okkur nú samt að borða og
að fara um hádegi til San Francisco. Fórum samt fyrst og tókum
myndir á hollywood búllívard, handa - og fótaförunum og fleiru
merkilegu sem við áttum eftir að taka myndir af. Fengum okkur svo
hádegismat og um 12:30 kom svo bíll að sækja okkur á hótelið. Vorum
bara fínar á því í þetta skiptið, ekkert rútuvesen heldur bara
´bíll beint út á völl. Ekki amalegt það. Vorum reyndar komnar
aðeins í fyrra lagi þannig að við tók bið á flugvellinum í ca. 2
tíma, en það var alltílagi því veðrið var yndislegt þannig að við
myndavélinni eða tölvunni, get bara ekki sett þær inn á tölvuna, en
fer að vinna betur í því núna. Getið kíkt á Stínu blogg
mynduð vita hver þetta er, en ég man ekkert hvernig á að gera
það..stína þú verður semsagt að kenna mér aftur...en googlið hana
California dreaming..Welcome to the hotel California..if you´re going to san fransisco...
Cape cod í strandarbæ í sumarbústað með stórfjölskyldu Sharon.
Ágætt alveg hreint. Fínt að vera í 30 sek. fjarlægð frá ströndinni
og einnig að fá smá svona sumarbústaðarfíling þar sem ekki verður
mikið um sumarbústaðaferðir hjá mér þetta árið! Reyndar komin með
grænar af öllum fjölskyldumeðlimum í augnablikinu. Búin að fá nóg
af þeim. En það er líka allt í lagi því ég er að fara til
einhvernveginn ætlum við að koma okkur yfir til Hollywood (seinni
tíma vandamál) þar sem við ætlum að skemmta okkur með fræga fólkinu
í tvo daga. Doldið kúl. Svo er ferðinni heitið til San Fransisco á
þriðjudaginn og þar ætlum við að hitta ennþá meira frægt fólk og
náttúrulega gera allt sem ekta túristar gera. Ekki alveg komið á
hreint þó hvað. Hef litla hugmynd um hvað er ´hægt að gera þar.
hmm...en þetta kemur allt í ljós..jájá....þetta reeedddast. Á
miðvikudaginn kemur Jess svo og hittir okkur í San Fr...gaman gaman
Á laugardasgmorguninn fer Stína svo heim..ég og Jess í vínsmökkun í
Napa..hahaha..eina planið hingað til....nei reyndar á miðvikudaginn
ætlum ég og Stína að leigja svona einhverskonar go-kart bíl sem fer
víst með mann um alla borgina og útvarpið' er svona guide....já það
verður sko stuð. .en svo förum ég og Jess heim með kvöldfluginu.
Stína fer heim fyrr því snemma á sunnudeginum er hún að fara með
á síðustu stundu, því ég þarf að vera tilbúin fyrir klukkan 6 því
planið var að fara út að borða og í bíó í kvöld. En við megum samt
ekki vera of seint á ferð þar sem við þurfum að vakna um 4
..engin helv.. rúta, það verður langferðabíll
bloggaði síðast. En eins og ég er alltaf að segja ykkur þá er ég
bissí leidí...og letingi á köflum, þess vegna hefur ekki mikið
gerst á þessari síðu síðustu vikur. En ég ætla nú heldur betur að
bæta úr því núna, enda nokkuð mikið búið að vera að gerast í
Sérstaklega að sjá litla engilinn minn hann Kristján Rafn sem var
sko bara alls ekki svo lítill lengur, heldur bara risa stór.
Kannski ekki skrítið þar sem kúturinn var 7 vikna þegar ég fór en 7
mánaða núna. Eðlilegt að hann sé búinn að stækka
í vísareikningnum sem lét sjá sig í dag..mér datt kannski í hug að
hann gæti kannski jafnvel mögulega tengst eitthvað aðeins því að
við komu voru það 2 stórar ferðatöskur, við brottför 4 stórar
ferðatöskur og samt komst ekki allt fyrir þannig að ennþá er
eitthvað af þeirra dóti hér..en þetta er náttúrulega bara ágiskun,
lét okkur systur líta út fyrir að vera einstaklega góðar..bara
tveggja tíma fjarlægð. Rosa skemmtilegur. Svona tívolí /
vatnsrennibrauta / skemmtigarður, þar sem ýmislegt var
brallað..farið í rússíbana (ekki ég reyndar, þurfti nebbla að
passa, annars hefði ég pottþétt farið sko, þori alveg í
svona..hmm..)..farið í allskonar kastidót þar sem við unnum alveg
helling af böngsum fyrir Stjána litla..létum teikna skopmynd af
upp í Prudential turninn sem er svona útsýnisturn á 50. hæð, rosa
úti í góða veðrinu og ýmislegt annað..Allt rosalega
tvisvar heldur þrisvar í Júní!!!..ja eða djamm og ekki djamm. Var
að fagna þjóðhátíðardeginum með stæl. Kíktum á mjög skemmtilegan
karioki stað í Cambridge með allskonar fólki, ekta pöbba stemning
og þið vitið nú hvað mér finnst svoleiðis gaman. Sungum þar hæ hó
jibbí jei og jibbí jei einsog sönnum íslendingum sæmir. Reyndar
ekki í karioki græjurnar heldur bara svona fyrir gesti og gangandi
og var okkur tekið undarlega vel verð ég að segja. En við skemmtum
okkur allar konunglega og tókum íslendinginn á þetta og vorum ekki
komnar heim fyrr en að ganga 5...allt íslenskt á
er frá Ástralíu. Hún býr í bæ sem er 45 mín frá þannig að þetta var
svona sleepover partý. Hitti þar fullt af miskemmtilegum au pair
stelpum og svo 4 miður skemmtilega Ameríkana. Og þegar ég segi
miður skemmtilega, meina ég hrikalega!!! Þetta voru semsagt fjórir
amerískir strákar sem Sally hafði kynnst. Einn þeirra var alveg
eins og Stiffler í American pie..eða samt miklu verri. Sagði
fokking og dúd í hverri einustu setningu, var í hvítum buxum og
opinni skyrtu niðrá nabbla. Talaði með hræðilegri röddu og var að
farast úr sjálfsdýrkun. Rosalega erfitt að útskýra hvernig hann
var..get bara fullyrt það að enginn af ykkur hefði þolað hann!. og
svo var það dvergurinn vinur hans..hann var ca. 152 cm á hæð..ef
hann náði því þá. Hélt líka að hann væri flottastur í heimi með
eins talsmáta og takta/stæla og vinurinn.." So dude wats Iceland
like you´no"..nei takk ekki fyrir mig..!!!..einstaklega asnalegir
þessir amerísku strákar..vinir þeirra tveir voru nú ekki svona
slæmir en engir hottí samt. En þetta var fínasta partý engu að
Eddi kom um síðustu helgi og ég og Stína fórum með honum út að
borða og sátum svo yfir drykk og spjalli fram yfir miðnætti..voða
sem hann kom hingað á þriðjudag til miðvikudag og svo aftur á
laugardag til sunnudags. Á þriðjudagskvöldið kíktm við ásamt Stínu
Rut út að borða og í göngutúr um Boston í 20 stiga hitanum sem var
ennþá um kvöldið..og svo á miðvikudeginum var glampandi sól og
blíða og hvað haldiði að við höfum gert..jújú ég og Stína kíktum
til Edda, þar sem er sundlaug og bekkir og bara algjör
spánarstemning uppi á þakinu á hótelinu!..var alveg geggjað! lágum
þarna i sólinni og létum þjóna okkur, kíktum í lunch og héldum svo
bara áfram að liggja. Er reyndar búið að kosta sitt fyrir mig og
mína ljósu húð þar sem ég skaðbrann alveg hreint og þar af leiðandi
er aloe vera after sun gel spray búið að vera minn besti vinur
síðustu daga. En þetta var nú þess virði samt. Eddi kom svo aftur á
laugardagskvöldið eins og sagði áðan, en á sunnudeginum kíktum við
svo ásamt Stínu og Jess í road trip til Rhode Island. Rosa stuð hjá
okkur. "Hver er maðurinn" sló alveg í gegn í bílnum enda 2 tíma
keyrsla hvora leið. Eddi reyndar alveg einstaklega lélegur í
honum..og nokkuð tapsár líka..en hann hætti á toppnum. Á Rhode
Island fórum við í bæ sem heitir Newport, fengum okkur lunch þar og
kíktum svo á gömul "sumarhús" sem ríkir kallar í gamla daga áttu.
Fórum í guidaðan túr um eitt húsið sem var sko risa risa stórt og
rosalega flott..erfitt að lýsa því ..en þetta var notað í eldgamla
daga þegar konur voru í síðkjólum og æ þið vitið...þetta var svona
eins og að vera staddur í bíómynd sem átti að gerast á svona
óðalsetri..eða hvað sem það er nú kallað. Mjög fróðlegt og
skemmtilegt. röltum svo aðeins þarna um og sáum nokkur önnur hús,
bara utanfrá reyndar, en rosa flott. En eyddum í þetta heilum degi
verðum í húsi rétt hjá ströndinni ..verður stuð. En stuðið byrjar
svo fyrir alvöru tveim vikum seinna því þá förum við til
þetta er alveg einstaklega leiðinleg færsla..en þið vonandi
nágrönnum..Susan Kennedy sem var gift Carl kennedy..hún er lesbía
in real life!!!...og Joe fyrrverandi maðurinn hennar hvað hét hún
aftur..klippikonan..pabbi Felicity..hann var rekinn úr þáttunum
vegna þess að hann var tekinn með einhver ólögleg lyf... já ekki
slæmt að eiga ástralska vinkonu ...hmm....þannig að ef ykkur langar
gleði gleði gleði
Það verður ekkert eftir af þessari á morgun...
bíð ég með mikilli tilhlökkun eftir að júní láti sjá sig. Afhverju?
Jú nefninlega í fyrsta lagi þá eru Ásdís, Oddur og Kristján Rafn að
koma í heimsókn 5. júní, mikil hamingja..í örðu lagi þá er maí
búinn að vera leiðinlegur mánuður, gerði ekkert merkilegt og mikil
vinna..mikil óhamingja. Í þriðja lagi þá er ég búin að vera í hérna
í 6 mánuði einmitt sama dag og Stísa og co koma, 5 júní....6
mánuði!!!..það er nú doldið ..hálft ár..þá get ég farið að telja
leiðinleg en löng. Amman og afin voru hérna með mér að passa
krakkana því foreldrarnir skelltu sér til Californíu. Þau eru
reyndar indælisfólk (amman og afinn sko) en vissu voða lítið í
hvorn fótinn þau áttu að stíga hérna, sem gerði það að verkum að ég
var að vinna nánast alla helgina. Fúlt. Ennþá fúlla (segir maður
það?) samt að enginn var heima hérna sem gat gert eitthvað með mér
þennan litla tíma sem ég var ekki að vinna. Kristín á Bahamas, Jess
í Maine og Emily í Vermont. Fyrsta skipti sem það kom sér illa hvað
ég hef verið léleg við að eignast nýja vini hérna. Eða semsagt
hringja í nýjar au pair stelpur, bjóða þær velkomnar og verða
vinkona þeirra. Hef bara ekki nennt að standa í því. En ég varð þar
af leiðandi bara að hanga heima og gera ekki neitt alla helgina,
því eins og flestir vita þá bara get ég ómögulega gert eitthvað ein
eins og farið í bíó, út að borða og þess háttar. Vantar sjálfstæðið
og hitti hana Sigurjónu au pair í Californíu. Hún hafði verið í
vikuferðalagi um austurströndina og endaði í Boston á föstudeginum,
þannig að það var æðislegt að geta kíkt aðeins út og náttúrulega
frábært að við gátum hisst, höfðum um nóg að tala, rosa
gaman....enda ekkert skemmtilegra en að hitta íslendinga í
óboðnir gestir þó sem gerði það að verkum að mér líkaði ekki vel
fólk sem dettur í hug að droppa í kaffi svona surprise heldur voru
þetta maurar. MAURAR!!!..ooooojjjjjjj... ef það er eitthvað sem ég
kallinn á laugardagskvöldið þegar ég sé þetta stærðarinnar kvikindi
(sko stærri en stór húsfluga) vappa hér um rúmið mitt, bara eins og
ekkert sé!!!...Ætlaði aldrei að geta sofnað því ég var alveg viss
um að það væri annar maur þarna einhversstaðar og ég myndi vakna
við það að hann væri að skríða á andlitinu á mér. Sofnaði þó fyrir
rest og vaknaði bara við vekjaraklukkuna..ekki maur. En svo á
sunnudagskvöldið´rétt áður en ég ætlaði að fara að koma mér í
háttinn sá ég annan..og annan..já það voru tveir maurar!!!...önnur
nokkra klukkustunda andvaka tók við vegna hræðslu. Svo í morgun
eftir að ég skutlaði krökkunum í skólanum fór ég að taka til í
herberginu mínu..já dugnaður í manni alltaf...og var þá ekki bara
fjórði maurinn á gólfinu!!!..þetta er eitthvað sem ég ekki þoli og
er orðinn enn ástfangnari af Íslandinu góða en ég var áður, eftir
wordinu ..í fyrsta skipti held ég bara svei mér þá. Þannig að ég
ætla að hætta núna áður en það gerist, enda sagði ég í upphafi að
titlinum....allir að giska..vei gaman.. En Stísa þú mátt eiginlega
samt ekki vera með því þú veist þetta allt saman. Ekki nema að þú
giska (sem ég trúi nú ekki upp á ykkur) þá máttu skrifa svarið svo
þetta líti ekki út fyrir að vera ömulegur leikur hjá mér sem enginn
Tóti tölvukall
nefninlega internetlaust hérna hjá okkur nánast allan gærdag og ég
vissi ekki hvert ég ætlaði! Allt sem mig langaði að gera allt í
einu tengdist internetinu. Gleymdi því líka reglulega að ekkert
internet var á tölvunni minni þannig að reglulega varð ég fyrir
netinu. Gat ekki tjékkað á veðurspánni, gat ekki séð Silvíu Nótt í
Eurovision, var ekki búin að sjá það.. það var á internetinu. Gat
ekki farið bloggsíðuhring..internetið. Jæja ég hringi þá kannski
bara í einhvern heima..heyrðu nei það er náttúrulega á skype sem er
í gegnum internetið! vá. Aldrei datt mér í hug að ég gæti orðið
internetið. Ef það ákveður að virka síðan ekki svona í einn dag þá
lamast bara þjóðfélagið. Núna er meira að segja ýmislegt sem ekki
gengur án internetsins og bara tölvna (beygist það svona?) yfir
Nei ekki minn stíll. En það er víst framtíðin. Rosalega þægileg
samt. En einhvernveginn ekki rétt að draga frá gluggunum, kveikja
leiðinlegt veður og ekkert að gera...en mundi þá eftri myndum sem
ég hafði sett á disk áður en ég kom hingað, til að taka með mér út
setja á þennan disk þar sem þær eru úr öllum áttum og margar
hverjar ótrúlega ómerkilegar. Líklega hef ég verið á síðustu stundu
(undarlegt!!)..að setja þessar myndir á disk þar sem mig langaði
taka einhverjar myndir með mér og bara valið þetta svona
nýjum tengli sem heitir "Myndir 2005" (neðst) þannig að þið getið
skoðað þetta...aldrei að vita nema að þú finnir mynd af þér
og pirruð yfir því hvað ég er alltaf heimsk á sunnudögum að sofa
til hádegis og liggja svo andvaka um kvöldið og telja niður
klukkutímana sem ég næ að sofa áður en klukkan hringir..í
augnablikinu eru þeir 5 og ég ekki einu sinni orðin
Raindrops keep falling on my head..tralllallalla..
samkvæmt spánni verður hellidemba alla næstu viku!..ussumsvei. Það
búið að gerast. Bara vinna og bíó.. að ógleymdum þeim fjölmörgu
göngutúrum sem ég og Stína höfum tekið, áður en veðurguðirnar
bíða eftir mögnuðu sögunni um hjólið, bílinn og manninn, sem Stína
nálægt því að fá mér áfallahjálp, gerði það þó ekki...en sjokkeruð
var ég. Og Stína og Jess! Við vorum semsagt bara í góðum gír
nýkomnar úr göngutúr á Harvard Sq. á þessu blíðskapar
föstudagskvöldi. Stigum upp í bílinn minn og lögðum í hann. Þegar
við vorum stopp á rauðu ljósi sáum við skyndilega mann hjóla fyrir
bíl...eða kannski bíl hjóla á mann öllu heldur þar sem bíllinn var
að keyra á móti umferð á einstefnugötu og átti greyið hjólamaðurinn
væntanlega ekki von á bíl úr þessari átt. Bíllinn semsagt keyrði á
hjólreiðamanninn sem flaug marga metra upp í loftið og endaði á
jörðinni!..úff...og við sáum þetta allt með eigin augum. Maðuinn lá
meðvitindalaus á götunni og allir byrjuðu að panikka af hræðslu,
enginn vissi hvað gera skyldi. Skyndilega stökk Kristín Rut út úr
bílnum...hljóp að manninum og öskraði..ALLIR FRÁ..ÞAÐ GENGUR EKKERT
NEMA MUNN VIÐ MUNN Á MANNINN..SJÁIÐI EKKI AÐ HANN ER HÆTTUR AÐ
ANDA!!!...með miklu offosi byrjaði stína að blása í manninn, reyndi
eins og hún gat..en ekkert gékk...þá var komið að hnoðinu og fékk
Kristín einhvern útigangsmann til að hjálpa sér. Enginn annar hafði
kjark í það þar sem maður er hiklaust kærður hérna í Ameríkunni ef
maður gerir eitthvað vitlaust, þó að maður sé að reyna að bjarga
fólki, eins og Stína í þessu tilfelli. En útigangsmaðurinn hefur nú
varla miklu að tapa... 1..2..3..4..5 og blása!!!...Kristín og
útigangsmaðurinn héldu áfram að reyna að bjarga vesalings manninum.
1..2..3..4..5. og blása!...En allt kom fyrir ekki..maðurinn hafði
það ekki af..og eftir sat Kristín ein úti á götu öskrandi WHY
ykkur...hmm...heldur betur.. kryddaði söguna kannski smá...ja eða
svona doldið..í öðrum orðum vorum við á rauðu ljósi sáum bíl koma
úr öfugri átt keyra á mann á hjóli. Hjólamaðurinn flaug ca. 20 cm
upp í loftið, stóð svo upp..kveinkaði sér aðeins..maðurinn úr
bílnum steig út og þeir fóru að rífast. Veit ekki um hvað þar sem
ég var inn í bíl og það var komið grænt hjá mér þannig að við
héldum áfram að keyra. Varð bara að reyna að gera þessa sögu smá
spennandi þar sem Stína var líklega búin að byggja upp miklar
væntingar hjá ykkur..eins lítið spennandi og alvöru sagan var...eða
svona..reyndar ekki á hverjum degi sem maður sér bíl keyra á
hjólamann...þannig að þetta var nú svona vægt sjokk...en heyrðu nóg
þannig að ég bara held áfram......Fórum nefninlega í bíó um daginn
á einstaklega undarlega mynd, sem að sjálfsögðu Stína valdi..þriðja
myndin á mjög skömmum tíma sem við sjáum sem er bara algjört
bull..sem hún velur.. þessi hét Hard Candy..get eiginlega ekki sagt
neitt um hana samt..jú góðir leikarar reyndar..óþekktir en voru
mjög góðir...en alveg einstaklega geðsjúk mynd. Þannig að ef þið
eruð einhverntímann í crazy skapi..þá er hún ábyggilega
fín...Boðskapurinn er semsagt...´hugsiði ykkur tvisvar um áður en
Francisco!!!..hvursu kúl er það spyr ég nú bara??!!! ég og stína
semsagt fljúgum til Hollywood, verðum þar í 2 nætur, fljúgum þá til
San Francisco og verðum þar í 4 nætur..og Jess hittir okkur
vikur!!!...sef varla á nóttunni fyrir spenningi!!! enda ekki búin
að sjá drenginn síðan hann var tæplega 2 mánaða...er að verða 7
tjúttið endilega látið mig vita því´ég á símakort sem gerir það að
verkum að ég get hringt til íslands úr gemsanum mínum..og þið vitið
nú hvað er alltaf gaman að tala saman þegar maður er á
Páskar
minnsta kosti ekki hjá minni fjölskyldu. Ekkert frí á Skírdag og
Föstudaginn langa, en frí annan i páskum. Undarlegt að fyrir fólk
eins og þau, sem fara í kirkju alla sunnudaga (hvort að það sé til
þess að sýnast eða vegna sterkrar trúar veit ég ekki) séu páskarnir
ekki stærri en þetta. Íslendingar fara í kirkju að meðaltali einu
sinni á ári. Að minnsta kosti þeir sem ég þekki. Samt höldum við
og Elva frænkur mínar kíktu í heimsókn frá fimmtudegi til
miðvikudags. Björguðu alveg páskunum. En semsagt við höfðum það
mjög skemmtilegt saman, mikið verslað að sjálfsögðu eins og sönnum
Íslendingum sæmir, þó að kortið hafi nú ekki einu sinni náð að
volgna hjá mér í þetta skiptið. Eingöngu þó vegna fátæktar, ekki
hófsemi. En frænkur mínar sáu nú til þess að efnahagur
Bandaríkjanna færi batnandi. En það var ekki bara verslað. Mikið
var borðað líka, Cheescake Factory klikkar aldrei enda fórum við
þangað nokkrum sinnum, þó að Elva hafi nú orðið fyrir smá
vonbrigðum með matinn. Ástæðan samt örugglega sú að ég og Dagný
vorum búnar að byggja upp ofurvæntingar hjá henni með öllu talinu
um hvað þessi staður væri góður. En henni fannst hann ekkert vondur
heitir V for Vendetta, undarleg og skrítin og klikkuð og leiðinleg.
En aftur á móti mæli ég sterklega með mynd sem heitir Unitd 93. Er
um 11 September. Mjög góð mynd. Átti bara erfitt með að jafna mig
hefðbundinn. Um hádegi vöknuðum við og gerðumst hinar íslensku
páskakanínur og dreifðum íslenskum páskaeggjum, þar sem pabbi hafði
verið svo elskulegur og keypt páskaegg handa öllu liðinu..þannig að
það voru 7 stykki páskaegg fyrir familíuna (amman og afinn voru í
heimsókn) , 3 fyrir okkur og eitt fyrir Jess. Einmitt soldið gaman
að segja frá því að pabbi var orðinn þekktur í Bónus sem
páskaeggjakallinn....Þegar mamma og pabbi komu í heimsókn í mars
komu þau með páskaegg handa mér og krökkunum. Þegar ég vissi svo að
Dagný væri að fara að koma þá fór pabbi út í Bónus og keypti fyrir
hana líka. Svo mundi ég eftir því að húsmóðirin hér á heimilinu er
óttalega mikill krakki oft á tíðum og gæti auðveldlega farið í fýlu
ef hún myndi ekki fá páskaegg, ja eða bara stolið eggjunum af
krökkunum og nú er ég ekki að grínast, annað eins hefur gerst hér,
þannig að pabbi var sendur út í Bónus til að kaupa tvö í viðbót.
Stuttu seinna kom það upp að Elva kæmi líka í heimsókn og að
sjálfsögðu þyrfti hún nú að fá eitt stykki páskaegg og jafnvel væri
ekki vitlaust að kaupa eitt fyrir Jess líka svona til að leyfa
henni að upplifa smá íslenska páska. Pabbi út í Bónus. En svo fór
ég að hugsa, þar sem amman og afinn myndu vera hérna um páskana þá
yrði nú hálfleiðinlegt að skilja þau út undan, pabbi var sammála.
Pabbi út í Bónus. Útkoman; 7 páskaegg númer 6 ásamt hinum sem mamma
komið hafði um nóttina og falið páskakörfur fyrir krakkana hafði
víst vitað af mér og falið eina fyrir mig líka. Þannig að ég fékk
að leita af minni páskakörfu, ekki ólíkt páskaeggjaleitinni upp í
sem þykja tíðindi hér á bæ. Þegar allir voru sestir vildi afinn að
það yrði farið með borðbæn og bað Kalla að segja hana. Strákarnir
flissuðu eitthvað yfir þessu og fannst þetta fyndið, en þeir voru
sussaðir niður um leið. Ég aftur á móti hef aldrei tekið þátt í
borðbæn áður og fannst þetta ógeðslega fyndið og átti mjög bágt með
mig. Ekki hjálpaði það að horfa á Elvu sem sat beint á móti mér,
milli afans og pabbans, halda í hendurnar á þeim með lokuð augun og
lifa sig inni í þetta. Það var farið að tísta í mér ég átti svo
bágt með mig, en ég er nú vel uppalin og kann mig alveg þannig að
ég náði að kæfa hláturinn. Ég veit að það er ekki fyndið að segja
frá þessi, en að vera þarna..úff...varð hlátursefni ferðarinnar.