Earlie curlie í Boston
Allt að gerast!
07.12.2006 20:48:31 / erlad

and now, the end is near, and so I....

 jæja.. þá er þetta bara búið!..ótrúlegt alveg.

Sit hérna núna, er að reyna að klára að pakka. Búin með flest allt svosem en það er spennandi að sjá hvort ég geti lokað töskunum. Væri betra.

Klukkan er núna 3:40 og ætlar Jess að sækja mig um 5 leytið til að fara upp á völl. Ótrúlegt alveg. Ég er svona að reyna að bíða með vælið, því það verður alveg á hreinu að ég á eftir að grenja eins og mér væri borgað fyrir það þegar ég kveð liðið..og sérstaklega þá Jess!..Veit nú ekki hvenær ég sé hana aftur, þar sem það er ekki auðveldast né ódýrast í heimi að kíkja í heimsókn því hún býr akkúrat hinum megin á hnetttinum! já allt undarlegt.

Er samt líka mjög spennt yfir því að koma heim. Hef ekki verið á Íslandi í heilt ár og búin að sakna allra rosalega!...en já bara allt mega skrítið núna.. .. en eins og maður sagði þá er víst stutt á milli hláturs og gráturs. Ælti það verði ekki þannig á eftir.

En jæja..ég ætla að fara að klára þetta...

flug eftir nokkra klukkutíma og svo bara lending 6:40 í fyrramálið á Íslandi..

úff...undarlegt, skrítið, gaman, sorglegt, stress, spenna......já..allur pakkinn!

sjáumst á morgun!

Bless Boston!

kv. Erla


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 06:03:07 / erlad

Carol eitthvað..nei david..hmm..

Jæja allt að gerast hérna í Boston.

Eins og þið hafið kannski tekið eftir er kominn dágóður tími síðan ég bloggaði síðast þannig að það er ýmislegt frásögufærandi búið að gerast. Nenni nú samt ekki að hafa þetta of langt þannig að ég segi bara smá frá hverju.. já og aldrei að vita nema að maður skelli bara inn nokkrum myndum í leiðinni..svona ef ég er í stuði.

En eins og ég benti á í síðustu færslu þá fór ég á Red Hot Chilli Peppers tónleika í Október. Ég og Jess keyptum þessa miða fyrir mörgum mánuðum, þannig að við vorum búnar að hlakka mikið til að fara. Tónleikarnir voru í Albany, í NY fylki, sesagt 3 tíma keyrsla þangað. Planið var fyrst að finna okkur hótel þarna og taka þetta sem svona helgarferð, en við nenntum því hvorugar þar sem við höfðum verið í NYC helgina áður. Þannig að við bara keyrðum fram og til baka. Balir (amerísk barnfóstra, sem býr hérna núna) kom með okkur þannig að þetta var ágætis road trip. En við semsagt sáum tónleikana sem voru algjörlega geðveikir! Voru í risa sal, fullt af fólki, mega stemmari. Stóðu heldur betur undir væntingum svo að 6 tíma keyrslan þennan dag var vel þess virði.

Síðustu helgina í Október kom Guðrún Erna í heimsókn!...og vá hvað það var gaman að sjá hana!!! Skemmtum okkur rosa vel. MIKIÐ verslað, og gudda sem ætlaði ekki að versla neitt. En það er nú bara einu sinni þannig að við íslendingar erum gjörsamlega kreisí í þessum málum, og er hún gudda mín engin undantekning þar..hahah. Borðuðum mikið ..alltof mikið reyndar..er ennþá södd!..en alltaf gott að borða góðan mat. Kíktum á tjúttið, enda alltof langt síðan við skáluðum í hvítvíni, fórum í trick or treat leiðangur sem cowgirls um nágrennið með krökkunum því Gudda var hérna yfir Halloween og bara ýmislegt annað! Skemmtum okkur svaka vel...bara stuð!

Svo sama dag og ég skutlaði Guðúnu Ernu út á völl sótti ég Kristínu Sigríði (fyrrverandi au pairin hérna) því hún var að koma í 5 daga heimsókn til okkar! Rosa gaman að sjá hana. Höfðum um margt að tala, enda mikið hægt að tala um þetta undarlega fólk sem við höfum báðar unnið fyrir og búið hjá. Ég var nú ekki sú skemmtilegasta í heimi samt þar sem ég var að deyja úr þreytu eftir Guðrúnar heimsóknina, það var svo mikið stuð á okkur, þannig að ég var meira í því að skutla Kristínu í mollin og svona. Enda var fjárhagurinn líka ekki upp á sitt besta, þar sem ég smitaðist smá af Guddu og verslaði alltof mikið. En Kristín þekkir sig um hérna þannig að það var allt í lagi. En það var voða gaman að fá hana í heimsókn og það verður pottþétt Aroma spjall þegar ég kem heim, ennþá fullt hægt að tala, ekki satt?

Kristín fór svo heim mánudaginn 6 nóvember og þá var nóg að gera hjá mér í að pakka niður herberginu mínu því nýja au pairin kom í hús fim. 9 nóv. Hún heitir Rachel og er frá Suður-Afríku. Soldið skrítið að það sé allt í einu einhver önnur kominn hérna. Byrjað að tala um mig sem fyrverandi au pair og þess háttar. Doldið skrítið.

Viku seinna, eða 16 nóv. komu svo Bjarki frændi og Dagný frænka í heimsókn. Það var ótrúlega gaman að sjá þau. Dagný með bumbu og Bjarki búin að stækka um heilann haus síðan ég sá hann síðast. Við gerðum ýmislegt skemmtilegt. Versluðum að sjálfsögðu, hélt nú að það yrði meira Dagný að draga Bjarka í búðirnar, en það var nú eiginlega öfugt. Bjarki hreinlega missti sig í búðunum..haha..en það er bara gaman. Við spiluðum keilu, fórum í bíó, fórum á rosa jólahátið niðrá Fenual hall með Sunnu og Hrafnhildi, þar sem var verið að kveikja á jólaljósunum. Eða rosa og ekki rosa, var búið að aulgýsa þetta sem einhverja mega hátíð þannig að eftivæntingarnar voru miklar, en tréið var nú ekki mikið stærra en það sem við erum með heima í stofu og ljósin ekki jafn mögnuð og búið var að auglýsa. En þetta var fínt samt sem áður...Allt rosa gaman!

Heglina eftir að þau fóru ákvað ég svo að skella mér til NYC og hitta Sunnu og co. Þau fóru á þriðjudeginum, en þar sem þetta var Thanksgiving helgin var þetta löng helgi, þannig að ég kom á fimmtudeginum. Þetta var rosa kósí helgi, mikið gengið um, tekið því rólega, borðað á ótrúlega flottum veitingastöðum...já og ekki má gleyma One tree hill..ég, Sunna og Nína Rut (elsta stelpan) vorum saman í herbergi og alltaf á kvöldin var One Tree Hill maraþon...ótrúlega góðir þættir.. Familían fór svo heim snemma á sunnudeginum, en ég og Sunna vorum eftir, tókum því rólega, röltum 5th ave. og fórum svo með flugi heim seinna um daginn. Rosa fín helgi.

Í síðustu viku vann ég svo bara 4 daga, því 30 nóv. var síðasti vinnudagurinn minn. Ótrúlega ´skrítin tilfinning! Búin að vera að þessu í heilt ár og svo er þetta bara búið! Er búin að vera bara að jólagjafaversla, pakka og þess háttar um helgina og svo eru það bara 3 dagar í viðbót og svo er ég komin heim! Veit eiginlega ekki hvað mér finnst um þetta allt saman...dáldið mixed tilfinningar í gangi...

en jæja... ætla að láta þetta nægja í bili, ekki skemmtileg færsla ég veit það, hef ekki dottið í blogggírinn ennþá en þar sem ég er búin að fá margar kvartanir ákvað ég að henda einhverju hérna inn..

Erla


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 18:19:18 / erlad

Já svei mér þá..

Þarsíðustu helgi (14-15 okt.) skelltum ég og Jess okkur til New York í tilefni af 25 ára afmæli Jess. Ferðin hófst eldsnemma á laugardagsmorguninn með 4 tíma rútukeyrslu. Vorum komnar í kínahverfið í NY um hádegi , blístruðum á gulann og beint upp á hótel sem var á besta stað í bænum, rétt við Times Sq. Við fundum þó ekki þennan spennufiðring á leiðinni, svona eins og maður finnur yfirleitt..er hótelið á góðum stað, gamalt/nýtt, góð herbergi..o.s.frv. þar sem þetta var sama hótel og ég og mamma og pabbi gistum á í mars. En það er svosem ágætt að vita að hverju maður gengur.

Eftir að hafa komið okkur fyrir röltum við niðrí Central Park þar sem Sex and the city ferðin okkur byrjaði. Fórum semsagt í svona 3 tíma guideaða ferð á þá staði sem þær fóru oft á í þáttunum, borðuðum cupcakes, sátum á tröppunum hjá Carrie og fullt annað. Rosa gaman. Og ekki eyðilagði það ferðina að við sáum einn frægann!..já eða svona...frægan fyrir suma...sáum hann Nigel Barker.. sæta, sköllótta dómarann í Americas Next Top Model. Hann var úti að leika með krakkann sinn á leikvelli þar sem allt fræga fólkið sem býr í New York fer út að leika með krakkana sína. Var nú að vonast til að sjá einhvern frægari, eins og til dæmis Sarah Jessica Parker það sem hún býr víst bara rétt hjá..en það verður bara næst! Ég var nú samt soldið skelkuð á tímabili þarna því við hópurinn semsagt stoppaði þarna fyrir framan leikvöllinn þannig að við stóðum þarna í soldinn tíma. Og ég náttúrulega missti mig smá þegar ég sá Nigel þar sem hann er frægur í mínum augum, þannig að ég varð að reyna að taka mynd af honum..svo að ég stillti Jess upp fyrir framan leikvöllinn og þóttist vera að taka mynd af henni en hann var svo nálægt og ég þurfti náttúrulega að útskýra trikkið mitt á ensku fyrir Jess og að ég hélt að hann hafi eitthvað fattað þetta.. því hann fór að horfa svo skringilega á okkur og var svona eins og hann væri svona frekar pirraður..lét konuna sína taka krakkann og byrjaði að labba út af leikvellinum í áttina til okkur! Leit svona út eins og þegar fræga fólkið verður pirrað út í ljósmyndara og lemur þá ..þannig að okkur stóð nú ekki á sama þarna í smá stund, sáum þetta alveg fyrir okkur...en svo var hann bara að fara í bakaríið sem var þarna á næsta horni. Kannki maður sé búin að horfa aðeins of mikið á E channel!

Eftir ferðina fórum við upp á hótel gerðum okkur til fyrir kvöldið og fórum svo út að borða á frekar fínum ítölskum stað..allavegna var hann nógu dýr!..Undarlegt hvað maður fær alltaf minni skammt af mat eftir því sem hann er dýrari. Keypti mér einhvern kjúkling sem kostaði frekar mikið..og ég fékk bara kjúkling..ekkert annað..bara nokkrir kjúklingabítar í miðjunni á disknum..en hann var nú góður samt. Hvítvínið var heldur ekki af verri kanntinum. Held samt að það sé eitthvað við hvítvínið í NY, ég verð svo asskoti fjörug eftir nokkra sopa! Skil þetta ekki alveg. Eftir matinn kíktum við á einhvern bar og fengum okkur drykk en það var nú ekki mikið stuðið þar þannig að við fórum upp á herbergi til að kíkja í guide bókina hennar Jess og sjá hvaða staðir væru heitastir í NY. Það var kannski ekki besta hugmynd í heimi því við steinsofnuðum báðar. Ég vil kenna víninu um og löngum degi, en pabbi vildi víst eitthvað meina að þetta væri ellimerki!...kannski bara allt í bland?

Daginn eftir vöknuðum við frekar snemma, enda svo úthvíldar eftir langan svefn, fórum í morgunmat, tjékkuðum okkur út og tókum leigubíl í spa-ið. Við semsagt áttum pantað nudd og andlitssnyrtingu. Agalega fínar á því.... Soldið skrítinn staður, en samt allt í lagi. Einhverjar rússneskar kellingar sem ráku þetta. Þær voru nú samt greinilega ekki orðnar varar við það að sumarið væri á enda og farið að kólna heldur í veðri, því þær voru með loftræstinguna á milljón..þannig að það var skítakuldi þarna inni. Ekki alveg það besta þegar maður er í nuddi og þar af leiðandi asni léttklæddur. Svo voru þær greinilega að reyna að græða sem mest þarna því þegar hún var búin að "húðgreina" mig rétt fyrir andlitssnyrtinguna sagði hún að ég væri með rosa þurra húð og það þyrfti nú að gera eitthvað róttækt í þessu. Prófaði eitthvað undratæki eins og hún kallaði það, og sagði að ekkert annað dygði. Þetta hljómaði voða spennandi og ég sá enga ástæðu til að gera þetta ekki ..en ákvað nú samt að spurja hvort þetta yrði eitthvað dýrara en það sem ég hafði pantað upphaflega, sem var semsagt europian facial á 85 dollara, sem by the way er bara nokkuð mikið miðað við minn fjárhag. " Hvursu mikið kostar þessi töfra-undur meðferð?".."hmm..látum okkur sjá..með kreminu..já og svo er það hreinsunin..hmm..24..46...heyrðu samtals verður þetta þá 300 dollarar."...300 DOLLARAR!!!...er kellingin að grínast!!!...fyrir þá sem ekki vita eru 300 dollarar 21 þús kall!!! "NEI TAKK"..sagði ég heldur ókurteisislega þar sem mér var svo brugðið..."ég ætla bara að halda mig við þessa fyrir 85 dollara!" ...Eftir þessa líka fínu andlitsnyrtingu á 85 dollara og ágæta ´nuddið, héldum við aftur á hótelið til að sækja farangurinn okkar. Á leiðinni sagði ég Jess frá þessari sjokkerandi sögu og kom þá á daginn að hún hafi fengið nákvæmlega eins sögu um sína húð. Semsagt kellingin sem var með hana sagði það sama við hana, að ekkert myndi duga nema 300 dollara meðferð!...klikkað lið. En við vorum nú einu sinni í New York City þar sem maður getur búist við öllu.

Þegar við vorum komnar með farangurinn okkar tókum við leigubíl í kínahverfið. Planið var að ná rútunni klukkan 4 heim. Klukkan var nú ekki nema rúmlega 3 þannig að við vorum á góðum tíma og ætluðum að fá okkur að borða áður en´rútan færi. En þar sem traffíkin var hrikaleg, tók ca 40 mín að keyra þangað. Við náðum þó að kaupa miða í rútuna, en eini maturinn sem við gátum keypt voru ógeðslegar pulsur í einhverjum pulsu vagni þarna...ég var búin að heita mér því eftir síðustu pulsu sem ég borðaði hérna, sem var einmitt í New York í febrúar, að ég myndi aldrei gera það aftur, en ég átti víst engra annarra kosta völ. Jú nema náttúrulega deyja úr hungri. Eftir að hafa kyngt síðasta bitanum með klýgju (skrifar maður það svona?), ennþá sársvöng, ákvað ég að hringja heim til íslands og heyra aðeins í fólki. Þá var matarboð heima hjá mömmu og pabba...stórfamilían þar og heyrðu þau voru nýbúin að klára lambalærið, með sósunni og brúnuðu kartöflunum, og salatinu.og.... "við erum bara að fara að byrja á desertnum"...Já alltaf gaman að hringja heim..;)...uss ef það verða ekki bara jólin á hverjum degi þegar ég kem heim þá veit ég ekki hvað!..

En jæja við komumst heim heilar á höldnu ..fórum í annan ammælisdinner með Sunnu á Cheescake um kvöldið. Já Cheescake klikkar aldrei!

Ætlaði líka að skrifa um Red Hot Chilli Peppert tónleikana sem ég fór á núna um helgina, en þar sem þessi saga er nógu löng í bili...enda skrifuð í smáatriðum...ó mæ..læt ég það bíða betri tíma.

Erla

- heyrðu já takk fyrir öll kommentin..yndislegt alveg...halda svona áfram!


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 00:49:25 / erlad

hentirðu útigrillinu?

Fimmtudagskvöld hafa alltaf verið heldur heilög í mínu lífi. Það er, ég hef haft það sem markmið og reglu að gera eitthvað skemmtilegt á fimmtudagskvöldum. Helgin á næsta leyti og kominn smá fílingur í mann. Áður en ég kom hingað til Bandaríkjanna voru þessi kvöld oft kennd við hvítvínsglas í góðra vina hópi, en þar sem vekjaraklukkan hér byrjar að hringja klukkan 6:00 alla föstudagsmorgna hef ég ekki lagt í neitt sterkara en Diet Coke og kannski einn lítinn bíópopp með því. Sem var einmitt planið okkar Sunnu á fimmtudagskvöldið síðasta. Bíómynd, popp og coke.

Við byrjuðum kvöldið á því að skoða hvað væri í bíó, klukkan hvað sýningarnar væru og hvaða bíó sýndi þessar myndir (hér er nefninlega allt morandi í litlum bíóum út um allt) Vorum komnar með nokkrar myndir í mismunandi bíóhúsum, en enduðum svo á því að finna tvær sem komu til greina. Ég sótti Sunnu og við vorum nokkuð tímalega í því þannig að við ákváðum bara að taka rúnt og spjalla þar sem við höfum nú alltaf nóg að tala um.

en svo var klukkan að vera 10 og kominn tími til að ákveða hvora myndina við vildum sjá og varð fyrir valinu grín/sport mynd sem sýnd var í Harvard Sq. bíóinu. Vorum komnar þangað nokkrar mínútur fyrir sýningu en komust þá að því að myndin var ekki sýnd þar. Ha!..þetta var skrítið. Við rugluðum semsagt saman bíóhúsum. Myndin sem við ætluðum að sjá var á Fresh Pond sem var í sirka 7 mín keyrslu frá. Við vorum nú ekki alveg vissar fyrst hvort við ættum að fara þangað þar sem myndinn var að byrja, en ákváðum bara að drífa okkur svona þar sem myndin byrjar aldrei á réttum tíma vegna auglýsingna. Við brunum af stað og í mikilli fljótfærni gleymdi ég einni beygju. Við töldum okkur ekkert þurfa að snúa við, við myndum bara halda áfram og vorum nokkuð vissar um að við vissum hvar við værum og hvert ætti að fara. Eftir um það bil 15 min keyrslu áttuðum við okkur á því að við vissum ekkert hvar við vorum. Sáum á skiltum að við vorum komnar í Belmont sem er annar bær. Héldum samt áfram að keyra, þar sem við vorum farnar að sættast á það að við myndum ekki sjá neina bíómynd þetta kvöldið, og eftir dágóða stund fundum við út hvert við ættum að fara.

En til þess að þetta kvöld myndi nú ekki alveg fara í vaskinn og þar sem ekkert varð um bíópopp og diet coke,´ákváðum við bara að fara í Shaws supermarkaðinn, kaupa okkur ís og fara heim til Sunnu og horfa á eins og einn Friends þátt. Þegar þangað var komið áttaði ég mig á því að klukkan að að ganga 11 þannig að í staðin fyrir að fara heim til Sunnu og borða ísinn yfir Friends , sem yrði væntanlega fleiri en einn þáttur ef ég þekki okkur rétt, breyttum við planinu aðeins og borðuðum bara ísinn í bílnum yfir spjalli, svona svo ég yrði nú komin heim fyrir miðnætti því eins og áður sagði þá var ræs snemma næsta dag.

Eftir um það bil 15 mínútna ísát og spjall var ljósið á útvarpinu farið að blikka. Hmm... skrítið. Pældum ekkert mikið í því, slökktum bara alveg á bílnum, sumsé ekkert útvarp. En þegar kominn var tími til að halda heim gat ég ekki startað bílnum. Heyrðist bara mjög skrítið hljóð! hver andsk.... er að bílnum??! Okkur datt strax í hug rafmagnsleysí en hljóðið var svo skrítið og hægt var að kveikja ljósin inn í bílum og á mælaborðinu þannig að okkur fannst þetta heldur undarlegt. En hvað áttum við að gera? Klukkan rúmlega 11 sem þýðir að allir "venjulegir" ameríkanar farnir í háttinn og þeir sem voru þarna á planinu urðu allir hálf krípí svona þegar við fórum að pæla í þeim. Og engir starkaplar voru í bílnum þannig að við vorum bara í djúpum. Hvern gátum við hringt í? .. hmm...lögguna?..jaaá jafnvel..ekki 911 samt..ekki alveg neyðartilvik. Hmm.... Ef þetta hefði verið á íslandi hefði þetta verið nó problem. Fullt af fólki sem hægt væri að hringja í og íslenska væri töluð. Við höfðum til dæmis ekki hugmnd um hvernig við ættum að segja startkaplar á ensku..já og rafmagnslaus.. nó elektríssiti..eða át off batterí? ..eftir miklar vangaveltur og nokkuð góða staðfestingu á að þetta væri rafmagnsleysi fór Sunna inn í Supermarkaðinn til að athuga hvort einhver þar gæti hjálpað okkur. Fékk þær upplýsingar að það væri fyrirtæki sem við gætum hringt í ..Phils Towing..þeir semsé sjá um þetta bílastæði. Við hringdum í Phil og náðum að útskýra hvað væri í gangi með einstakelga lélegri ensku og kom hann stuttu seinna og gaf okkur start. Þetta prósess tók um það bil klukkutíma þannig að ég var ekki komin heim fyrir miðnætti þetta mistæka kvöld! En sko þvílík heppni að við vorum á þessu bílastæði því hann Phil vinur okkar þjónar því bara..annars hefðum við virkilega verið í djúpum.

Lífið gengur nú annars bara sinn vanagang hérna, nema hvað mamma og pabbi komu í heimsókn í lok september, það var rosalega gaman hjá okkur. Gerðum fullt af hlutum, fórum í duck tour, upp í prudential turninn, sáum blue man group, versluðum handklæði, versluðum föt, versluðum jóladót..hahah...fórum rosa fínt út að borða og buðum Sunnu og Jess með, gengum um og nutum sumarblíðunnar og bara ýmislegt annað. Allt saman alveg æðislegt!

heyðru og svo í gærkvöldi fórum ég og Sunna svo að sjá hann James Blunt!!!..Geðveikir tónleikar í alla staði! Stóð heldu betur fyrir sínu kallinn.

Í dag var ég svo að plana einnar nætur ferð til New York næsta laugardag. Ég og Jess ætlum að skella okkur þar sem hún verður 25 ára næsta sunnudag. gaman gaman

fer að setja inn myndir bráðum..á fullt af myndum af hinu og þessu frá því í sumar.

En jæja..komið gott

knús og kossar

Erla


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 18:01:15 / erlad

jæjajá..

sæl veriði.

Hér er ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast og ýmislegt að fara að gerast. Nenni ekki að skrifa nokkra blaðsíðna blogg þannig að þetta verður bara svona punktafærlsa:

 - Kristín Rut fór aftur til Íslands 10. ágúst og Sunna kom í hennar stað 17. ágúst, fínt alveg hreint.. löngu komin með nóg af Stínu...neei grín, en samt fínt að fá Sunnu.

- Fór í vikuferð með familíunni síðustu vikuna í ágúst. Vorum á einhverju Rocking Horse Ranch hóteli fyrst í tvær nætur. Þetta var svona resort, þar sem allt er borgað fyrirfram og fullt um að vera, til dæmis fór ég á hestbak en leiddist það reyndar svo hrikalega að ég átta mig ekkert á fólki sem nennir þessu daginn út og inn..ég dansaði línudans sem er heljarinnar fjör alveg hreint, skaut úr riffli..átti ekki mikið við mig, upplifði ekta ameríska varðeldastemningu þar sem krakkarnir grilluðu sér sykurpúða og allir sungu Old McDonald ásamt hásum, gömlum gítarleikara..gerist varla mikið amerískara, klifraði upp svona klifurvegg..aldrei gert það áður og það er bara helv..erfitt! Og margt margt annað.                                                                        Eftir þetta var förinni haldið til NY fylkis í eitthvað lítið þorp þar sem amman og afinn (foreldrar Carl) búa. Vorum þar í 5 nætur. Gerðum ekki mjög mikið þar sem það var rigning nánast allan tímann, einhverjar leyfar af fellibylnum sem var á Flórída. En við fengum nú smá sól svona inn á milli. Fórum þá út á bátinn sem þau eiga..voða fínn bátur ...já og haldiði að ég, skræfan sjálf, hafi ekki bara farið á jetsky!!! og það var nokkuð skemmtilegtbara. ..jájá.. Svo spilaði ég botsía alveg á fullu, hafði einmitt aldrei gert það áður en það er hörkustuð skal ég ykkur segja. Alls ekki bara fyrir gamlingja..það er bara bull..! Svo var það 7 tíma keyrsla heim. Get ekki sagt að mér hafi fundist slæmt að komast heim enda komin með nokkuð mikið nóg af familíunni. En ágætis ferð samt.

- Á föstudaginn, eða semsagt eftir 2 daga koma mamma og pabbi í heimsókn!!!..2 DAGA!!! get bara ekki beðið..planið að gerast svona ekta túristar og gera allt sem þeir gera hér..fara í Duck tour sem er svona sight seen ferð bæði á sjó og landi, fara í prudential turninn, á blue man group sýninguna, já og mollin að sjálfsögðu og fullt annað skemmtilegt! Verður bara gaman!

- Er mjög líklega að fara á James Blunt tónleika í byrjun okt!!!..

- Er pottþétt að fara á Red Hot Chilli Pepper tónleika í Albany, NY fylki 21. okt

- Guðrún Erna er að koma í heimsókn síðustu helgina í okt.!!!..getum kíkt á "kaffihús" saman!!!..alltof langt síðan síðast..og kannski hún kenni mér að tjútta aftur svona áður en ég fer heim..ekki vanþörf á því!....bara snilld!!!

- 9. nóv. kemur nýja au pairin hingað. Hún heitir Rachel og er frá Suður-Afríku. Hún vildi komast hingað sem fyrst þannig að Carl og Sharon gerðu samning við mig um að við myndum vinna saman í 3 vikur, ég semsagt að kenna henni allt og svona og svo fengi ég síðustu vikuna mína frí!!!..ekki amalegt það! Verð með félagsskap síðustu 3 vikurnar og svo frí í heila viku!

- Dagný frænka ætlar að koma í heimsókn um miðjan nóvember í 4 skiptið!!!...algjör snilld.!!! Getum kíkt saman í jólagjafainnkaup og þ.h....bara gaman!!!

Já þetta er svona nokkurnveginn það sem er að gerast hjá það sem eftir er hér í Boston!..Farið að styttast alveg svakalega í heimför!!!...aðeins 2 og hálfur mánuður!!!..já eða ca 80 dagar eins og Elísa benti mér á! 

glæsó smæsó! 

Erla


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 13:28:38 / erlad

Myndir!!!

Hæhæ og Halló Er bara að láta ykkur vita að loksins er ég búin að setja inn myndir frá Californíu. Reyndar bara Hollywood því ég hef ekki meiri tíma í bili þar sem ég er að vinna og er búin að vera að vinna eins og brjáluð manneskja síðustu 3 vikur, sem er einmitt ein afsökun fyrir bloggleysi. Hinar tvær eru bilað internet og leti.

En ég tek mig á fljótlega... Það er að segja ef þið kommentið gott fólk. Alveg einstaklega leiðinlegt að skrifa blogg sem enginn kommentar á og taki þeir til sín sem eiga ( er það ekki sagt svona)

jæja ég er farin að bulla...

endilega kíkið á myndirnar...Hollywood 1 og 2..gat nefninlega ekki sett þetta allt í sama albúm, skil það ekki, en það er svo margt óskiljanlegt í þessum heimi.

Erla


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 16:07:20 / erlad

framhald - San Fransisco

já semsagt við lentum þarna í San Fransisco um 5 leytið og við tóku rútu- og lestar pælingar. Það var semsagt rúta frá flugvellinum að lestarstöðinni, þar þurftum við að finna út hvar við værum og hvert við værum að fara o.þ.h. en við fundum nú út úr því öllu saman með hjálp heimamanna.

Eftir um það bil 20 mín. lestarferð vorum við komnar. Við stoppuðum nánast down town SF og fundum út að hótelið okkar var ekki nema nokkrum húsalengjum frá. Þannig að við ákváðum að labba þetta bara. Eins og áður, vissum við ekkert út í hvað við vorum að fara. Þ.e. hvernig hótelið var og hvaða hverfi það væri í. En þetta leit allt saman ágætlega út þarna fyrst, en fór svo hraðversnandi með hverju skrefi sem við tókum. Endalust mikið af útigangsfólki ýmist betlandi pening eða kallandi á eftir okkur. Byggingarnar gamlar og ljótar, göturnar óhreinar og allt svona frekar óhugnalegt. Jess benti okkur nú á seinna að þetta væri ein af fáum götum SF sem að maður ætti ALDREI að ganga! Hótelið var nú svo ekki upp á marga fiska. Í frekar slæmu hverfi, eldgamalt, skrítin lykt og skrítið fólk! En það var ekkert við því að gera nema bara gera gott úr hlutunum (pollýönnu leikurinn góði) þannig að við komum okkur bara fyrir og svona.

Um 9 leytið fórum við svo út að borða, enda orðnar vel svangar eftir ferðalag dagsins. Við vorum búnar að heyra að það væri frekar kalt í SF sérstaklega á kvöldin þannig að við smelltum okkur í síðbuxur og langerma gollu, töldum okkur vera vel búnar þannig, en svo var nú aldeilis ekki. Ætluðum að taka strætó niðrá Union Sq. biðum í ca.15 mín en þá vorum við bara alveg að krókna þannig að við veifuðum bara á næsta taxa til að komst inn í hlýjuna sem fyrst! bíddu bíddu vorum við ekki í Californíu!!!???...við vorum ekki alveg að skilja þetta. En við náðum nú á okkur hita, borðuðum og fórum svo upp á hótel að sofa. Ég var nú ekkert alveg viss um hvað mér fannst um SF á þessum tímapunkti. Skítakuldi, lélegt hótel og allt morandi í skrítnu fólki.

Dagur 4

Vöknuðum snemma því við áttum pantaðan gocar bíl klukkan 10. Carl og Sharon voru nefninlega i SF í maí og sáu svona bíla út um allt og fannst þetta svo sniðugt að þau ákváðu að splæsa á okkur heilum degi í þessu! Eins og fyrri daginn vissum við nú ekkert út í hvað við vorum að fara né hvar þetta var. En við erum fluggáfaðar og fundum út úr því á nó tæm.

Þessi ´bíll var ekkert smá fyndinn. Pínku lítill, tveggja sæta svona opinn. Minnti mig á rafmagnsbílana í fjölskyldu garðinu, nema fyrir tvo fullorðna. En þeir virkuðu semsagt þannig að það var svona gbs tæki í úvarpinu sem sagði okkur hvert við áttum að fara allan tímann og einnig hvað væri merkilegt í kringum okkur. Þannig að þetta var svona eins og að vera í sight seen ferð nema að við fengum að stoppa þegar við vildum eins lengi og við vildum og þurftum ekki að stoppa á stöðum sem okkur þótti ekki merkilegir. Algjör snilld! Og hrikalega fyndið því þessir bílar voru svo litlir og gulir að fólk tók eftir okkur hvar sem við vorum, þar sem við keyrðum bara á aðalgötunum. Og svo vorum við líka með þessa einstaklega fallegu, stóru hjálma sem gerðu okkur ennþá meira kúl. Var hálf kjánalegt í fyrstu, en síðan vandist þetta allt saman og ekkert óþægilegt að láta fólk stoppa, benda og hlæja af sér. Bara fyndið. En eins og ég sagði þá var þetta algjör snilld og við sáum bara nánast allt sem áhugavert var að sjá þarna. Golden gate brúnna, fullt af minnismerkjum, keyrðum um golden gate garðinn (sem er stærri en Central Park, sem er mjög ´stór!), snígluðumst upp á twin peaks (eða hvernig sem það er nú skrifað) og sáum þaðan ótrúlegt útsýni yfir alla SF, keyrðum down town og meðfram strandlengjunni og ýmislegt fleira. Tókum allan daginn í þetta enda sól og ´sumarblíða, eitthvað annað en kvöldið áður! Vorum komnar upp á hótel um 6 leytið. Eftir þennan frábæra dag hafði skoðun mín á SF heldur betur breyst! Hún var algjört æði!

Um kvöldið vorum við svo bara upp á hótelherbergi að bíða eftir Jess. Hún var semsagt að fljúga frá Boston og var komin örugglega um 10 leytið upp á hótel. Henni leist nú ekkert allt of vel á hótelið. Sérstaklega ekki þar sem hún hafði lesið í guide bókinni sinni að maður ætti aldrei að beygja til vinstri þegar gengið væri út um hótelið því þá væri maður bara kominn í algjört krimmahverfi, en að beygja til hægri væri í lagi. En við vorum nú ekkert langt frá góða hverfinu þannig að þetta var allt í lagi. Fórum bara í háttinn frekar snemma þetta kvöldið.

Dagur 5

Vöknuðum bara í rólegheitum, gerðum okkur til og röltum niðrá Union Sq. í sól og einstaklega góðu veðri. Ekkert plan þennan dag en við ákváðum að fara á Fisherman´s wharf, sem er við sjóinn og roslegt túristasvæði, skoða okkur þar um og kaupa miða í Alcatraz fangelsið. Okkur fannst tilvalið að taka svona trollí bíl þangað, enda rosalega San Fransisco legt, en eftir um það bil 20 mín. bið á stoppustöðinni og ekki miklar líkur á að komast með í bráð ákváðum við að rölta á næstu stoppustöð og sjá hvernig staðan væri þar. En það var það sama þar þannig að þá var það bara næsta. Nei sama sagan þar. Að lokum gáfumst við bara upp og ákváðum að rölta þetta bara allt saman, við værum hvort sem er byrjaðar. Komst betur að því hvursu hrikalega lélegu formi ég er í því ef þið vitið það ekki þá er SF öll í brekkum upp og niður þannig að þetta tók á. En ekkert nema gott og blessað með það. Þegar við komum svo á áfangastað fórum við strax í röðina fyrir miða í Alcatraz. Eftir 20 mín bið þar fengum við þær upplýsingar að uppselt væri fram á þriðjudag!!! og við vorum þarna á fimmtudegi og að fara heim á laugardag! Vorum greinilega full bjartsýnar því pælingin var að ef þeir ættu laust pláss innan við hálftíma myndum við fara í dag, annars bara á morgun! Fengum reyndar líka þær upplýsingar að hægt væri að kaupa svona standby miða sem virkaði þannig að við myndum bara bíða í röð og vonast til að fólk sem ætti miða í ferjuna myndi ekki koma. Við vorum of seinar að kaupa standby miða þennan daginn, en ákváðum að láta á það reyna daginn eftir.

En við höfðum ýmislegt annað að gera þarna. Fullt af svona minjagripaverslunum og þess háttar sem við gleymdum okkur í, reyndum svo aftur að komast í svona trollí bíl eða vagn réttara sagt sem tók sinn tíma, en án árangurs þannig að við tókum leigubíl niðrá financial district. Þar voru tvær byggingar sem Jess langaði svakalega til að sjá. Eitthvað sem hún hafði lesið um í guide bókinni. Okkur Stínu var svosem sama, ekkert að missa okkur yfir þessu, en þetta voru nú flottar og merkilegar byggingar engu að siður. Man nú ekkert hvað þær heita reyndar, en það er aukaatriði. Eftir það gengum við svo upp á hótel, sem var nú alveg smá spölur þannig að þessi dagur var ágætis líkamsrækt alveg hreint. Þegar á hótelið var komið fórum við bara að gera okkur reddý rólega því planið var að borða góðan mat á góðum veitingastað og kíkja svo á pöbbinn eftir það.

Eftir miklar veitingastaðapælingar fundum við þennan líka fína millidýra stað og fengum okkur rosalega góðan mat og skoluðum honum niður með hvítvíni. Vorum nú orðnar ágætlega hressar svona eftir matinn, sérstaklega þá Jess sem var farin að segja misfallegar sögur af sér og sínum í gamla daga. En það var nú bara stuð. Eftir matinn fórum við svo bara á pöbbinn við hliðiná þar sem var live pianó stemning. Það hittum við margt miðskemmtilegt fólk. Jess þóttist vera íslendingur og heita Johana eins og hún bar það fram og við þóttumst vera í frægri íslenskri hljómsveit!..já..alltaf gaman að rugla aðeins í þessum ameríkönum! Þegar lokaði, eða klukkan 2 !!! fórum við bara upp á hótel og sofnuðum.

Dagur 6

Ætluðum að vakna klukkan 8 og vera komnar í röðina fyrir Alcatraz klukkan 8:45 því þá byrjuðu þeir að selja standby miðana. Það gerðist ekki. Vöknuðum um 9 leytið og vorum komnar um 10. Þá var komin röð lengst út á götu sem við þurftum að bíða í. Vorum reyndar gáfaðar þar sem Jess fór og beið í standby röðinni en við í miðaröðinni þannig að við ættum kannski einhvern sjéns á að komast með. Loksins var röðin komin að okkur og fengum við síðustu 3 stanbymiðana sem seldur yrðu þennan daginn!´hjúkk! Við hefðum betur vaknað aðeins fyrr því við vorum næstaftastar í röðinni, með ekki nema ca 80 manns á undan okkur!!! ákváðum nú samt að bíða og sjá hvernig þetta færi allt saman. Þetta leit nú vel út til að byrja með. Voru að hleypa 20-30 manns með í hverja ferð og það var farið á hálftíma fresti. En stundum voru það ekki nema 3-4 sem komust sem gerði það að verkum að við biðum þarna í röðinni í 4 klukkutíma!!! úff. Í steikjandi sól. Þetta leið nú reyndar frekar hratt enda komin smá stemning í röðinni. Maður var náttúrulega farin að þekkja fólkið í kringum sig ágætlega vel og svona. Vantaði bara gítarinn og sönginn, þá hefði þetta verið svaka stuð!

 En við komumst með í ferðina, og stóð hún skoheldur betur undir væntingum!!! Þetta var alveg magnað að sjá. Semsagt fangelsi út á eyju 10 mín frá SF sem var notað í gamla daga og allt er eins og það var eiginlega. Eða semsagt við gátum séð hvernig klefarnir voru og svoleiðis. Og svo fengum við svona headsett þar sem var bæði leiðsögumaður að segja frá hvert við ættum að fara og hvað við vorum að skoða hverju sinni og svo líka viðtal við fyrrverandi fanga þar og live upptökur af þeim þegar þeir voru í fangelsinu! Rosalegt alveg. Ef þið farið einhverntímann til SF þá bara verðiði að fara þangað!

Þegar við komum aftur til baka fórum við bara upp á hótel, enda nokkuð uppgefnar eftir þennan langa dag! lögðum okkur bara aðeins og fórum svo seinna um kvöldið út að borða. Eftir matinn fórum við svo upp á hótel, þurftum að pakka og gera allt klárt því Stína var að fara snemma næsta dag í flug og ég og Jess vorum að fara í vínsmökkunarferð klukkan 8 um morguninn þannig að við þurftum að tjékka okkur út fyrir þann tíma.

Dagur 7

Stína vaknaði eldsnemma og var farin út um 7 leytið. Ég og Jess snemma og vorum farnar út rétt fyrir 8. Þá kom svona mínírúta að sækja okkur ásamt 13 aðra frá mismunandi hótelum og svo var lagt af stað yfir í vínhéruðin. Ég man nú eiginlega ekkert hvað þetta heitir þar sem við vorum en við byrjuðum á því að stoppa í einhverjum skógi, þar sem voru rosalega sérstök, risastór tré eitthvað sem vínið var unnið með. Eftir klukkutíma þar tók smá keyrsla við á fyrsta vínsmökkunarstaðinn. Og það var sko sjúklega heitt þennan dag, alveg hrikalega. Það var nefninlega hitabylgja að byrja þarna. En allavegna´þá fengum við að smakka fullt af góðu víni, lærðum helling og fengum svo að drekka það allt. Ég hélt að maður ætti alltaf að spýta út úr sér víninu í svona smökkun en greinilega ekki þarna. Þannig að fólk var alveg komið í smá stuð þarna í rútunni eftir þetta, enda kannski hitinn að hjálpa til. Svo stoppuðum við í einhverjum bæ og borðuðum hádegimat, því öll keyrslan tók svo langan tíma. Eftir hádegismatinn stoppuðum við svo á tveimur öðrum vínframleiðislustöðum. Ég, ásamt mörgum öðrum gat þó ekki drukkið þetta allt saman útaf hitanum. Enda sagði guideinn okkar að við ættum alls ekki að drekka ef hitinn væri að drepa okkur því þá myndi bara líða yfir okkur. En ég smakkaði nú helling samt og það var farin að myndast rosa góð stemning í hópnum. Allir voða spenntar að heyra um Ísland. Er alveg búin að komast að því að við búum á mjög merkilegu landi! En þetta var rosalega fróðlegt og skemmtilegt. Núna veit ég af hverju ég til dæmis hristi glasið áður en ég drekk vínið!..gerði það meira svona upp á punt hér áður fyrr hahah..

Svo um 6 leytið vorum við komnar aftur upp á hótel en vorum náttúrulega ekki með neitt herbergi þannig að við ákváðum bara að drífa okkur upp á völl þó að flugið okkar væri ekki fyrr en klukkan 10:35..betra að hanga þar en í lobbíinu á hótelinu. Tók líka sinn tíma að fara í lestina og rútuna og svona og vorum komnar bara á ágætis´tíma upp á völl, fengum okkur kvöldmat og ´svo var bara komið að fluginu. Flugum semsagt yfir nóttina heim, sem var ágætt, nema miðjusætið sem ég var í var ekki alveg að gera sig, alltaf erfitt að finna góða sofustellingu í því, en ég svaf nú samt aðeins. Lentum svo í Boston klukkan 7 á Bostonískum tíma og svo svaf ég bara allan sunnudaginn! Enda dauðuppgefin eftir hrent út sagt MAGNAÐA ferð!!!

 

Erla

- já og myndirnar eru í vinnslu..allt að koma...

- og svo væri gaman að fá kommen..ekki búin að eyða nema sirka..hmm..vóóó. 2 tímum í þetta!!!!

- já og ég nenni bara engan veginn að lesa yfir þetta núna, þannig að ef þið sjáið málfræði-og/eða stafsetningavillur þá leiðrétti ég þær síðar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 19:10:19 / erlad

úff úff úff

úff úff úff hvað það var gaman.

Ég er semsagt komin heim frá Californíu og úff úff úff hvað þetta var mikil snilld.

En við skulum nú byrja á byrjuninni.

Eftir 2 tíma svefn aðfaranótt sunnudagsins 16 júlí, eða klukkan 3:15 vöknuðum við Kristín hressar og sprækar reddý fyrir Californíu. Vorum komnar upp á völl um 4:30 og áttum flug klukkan 6:15. Spennan alveg að drepa okkur en þreytan sagði nú líka aðeins til sín, enda 6 og hálfs tíma flug framundan. Náðum nú samt að sofa mestmegnis af ferðinni. Ekki vel þó, enda sefur maður aldrei vel í flugvélum, en ágætlega þó. Lentum á Long Beach flugvelli um 9 leytið á Californískum tíma og þá var það spurningin hvernig við ættum að koma okkur til Hollywood. Eins og þið sjáið kannski á blogginu hérna fyrir neðan þá var ekki mikið um skipulag fyrir þessa ferð þrátt fyrir nægjan fyrirvara. Eina sem við vissum var að við áttum pantað á hóteli sem hét Hollywood orchid suites,..meira vissum við ekki um þessa ferð. En það var ekkert annað að gera en bara setjast upp í leigubíl, vissum reyndar að keyrslan til Hollywood tæki um klukkutíma, þannig að taxinn keyrði okkur á næstu rútustöð. Mikil spenna var um hvort við fengjum miða í rútuna sem færi eftir klukkutíma, þar sem við nenntum ekki að bíða til hádegis og einnig vegna þess að þetta var klukkutíma ferð en næsta rúta tók sér góða tvo tíma í að koma sér til Hollywood. Við vorum heppnar í þetta sinn og fengum miða í 10:30 rútuna. Tók reyndar aðeins meiri tíma en áætlað var þar sem við þurftum að skipta um rútu á miðri leið og enn og aftur vorum við heppnar að komast með því það skipti víst ekki máli hvort maður ætti miða eða ekki, það voru bara fyrstir koma fyrstir fá pláss.

En semsagt um hádegi vorum við loksins komnar til Hollywood og stóðum þar á rútustöðinni með farangurinn okkar og vissum varla í hvorn fótinn við áttum að stíga. Smá svona fílingur eins og við værum ungar leikkonur að reyna að fara að meika það í Hollywood. En svo var nú ekki. Eftir miklar pælingar á korti komumst við að því að hótelið okkar var skammt frá þannig að við röltum þetta bara. Okkur til mikillar ánægju var leiðin á hótelið Hollywood Búllevard (hef ekki hugmynd um hvernig þetta er skrifað) einnig þekkt sem "Walk of fame" semsagt gatan með öllum stjörnunum á!!! smá missingur þegar við gegnum þarna um, ekki mikill þó þar sem við vildum drífa okkur á hótelið, skila töskum og sjá hvort þar væri búanlegt. Eftir smá meiri kortapælingar komumst við nú loksins á leiðarenda.

Hótelherbergið ekki tilbúið þó en þetta leit allt ágætlega út, lítið hótel með sundlaug og fínu fólki. Við áttuðum okkur þó ekki á því hvað þetta var gott hótel fyrr en við röltum út, í þeim tilgangi að fá okkur hádegismat á meðan við biðum eftir herberginu. Við vorum 10 SKREFUM FRÁ ÖLLU!!!..(doldið ofnotuð setning í ferðinni, gátum bara ekki trúað þessu og þurftum þar af leiðandi sífellt að minna okkur á það) Við semsagt vorum við hliðina á Kodak theater, þar sem óskarinn fer fram, rétt hjá frábæru útsýni yfir Hollywood skiltið, Hollywood Búllevard, Handa- og fótaförunum frægu (veit ekki hvað það heitir). Þetta var bara í einu orði sagt geðveikt! úff úff úff. Meiri missingur.

Tókum þennan dag bara rólega. Eftir að við fengum hótelherbergið, sem já var bara eins og best væri á kosið, kíktum við í sólbað og sundsprett og svo um kvöldið röltum við um svæðið. Fullt af lífi og fjöri. Fengum okkur að borða og vorum svo bara komnar nokkuð snemma upp á hótel enda tímamismunur að segja til sín og skynsamlegt að vera vel upplagður næsta dag.

Dagur 2

Vöknuðum eldsnemma og vorum komnar út um 8:30. Við höfðum pantað miða daginn áður í sightseen ferð. Byrjuðum semsagt á því að keyra um svæðið í svona opinni rútu (Kristínu fannst það alveg magnað!). Við sáum alveg heilan helling, walk of fame, kodak theater, hollywood merkið, paramount stúdíóið, cbs stúdíóið, og margt margt fleira. Ýmislegt reyndar sem við höfðum séð þar sem hótelið okkar var svo nálægt (muniði aðeins 10 skref!!!) en samt gaman að fræðast betur um þetta allt saman með leiðsögumanni. Eftir þessa sightseen var komið að annari sightseen, aðeins öðruvísi reyndar, það fór fram í mínirútu og vorum við að fara að sjá hús fræga fólksins:o)..já sumum finnst það kannski ekkert merkilegt en okkur þótti það ákaflega merkilegt. Þannig að nú vitum við semsagt hvar Will Farrel, Charlize Theron, Ben Stiller, Sylvester Stallon já og svo ég tali nú ekki um hann Dr. Phil vin minn og margir fleiri eiga heima. Nokkuð töff myndi ég segja. Reyndar oft sem við sáum ekkert annað en runna og girðingar þar sem þetta fólk, af einhverri óskiljanlegri ástæðu, vill loka sig inni svo klikkaðir túristar eins og við fáum ekki að sjá það öllum stundum..undarlegt, finnst ykkur ekki?..hahah.

Við vorum nú samt svo nálægt því að sjá hann Tom Cruise að það má nú bara eiginlega segja að við höfum séð hann. Við vorum semsagt að keyra fram hjá húsinu hans þar sem einungis sést í tré og hlið, en akkúrat þegar við vorum að keyra fram hjá opnaðist hliðið. Bílstjórinn snar stoppaði ..hliðið er að opnast..HLIÐIÐ ER AÐ OPNAST..VERIÐI TILBÚIN MEÐ MYNDAVÉLINA..HLIÐIÐ ER AÐ OPNAST!!!!!...bíll keyrir hægt í gegnum hliðið...blæjan er niðri...BLÆJAN ER NIÐRI GOTT FÓLK...hver er þetta..er þetta Tom..ER ÞETTA TOM..EÐA KATIE..NEI ÞETTA ER TOM...eða hvað..neeii..heyrðu þetta er bara einhver ljóshærð kona með sólgleraugu ..frábært! úff. Missti mig aðeins þarna, hélt í nokkrar sekúndur að ég væri eksjúlí að fara að sjá Tom, en nei nei ekki í þetta skiptið. Kannski næst.

En við keyrðum einnig Rodeo Drive þar sem allt fræga fólkið verlsar fötin sín, þar er til dæmis búð sem þarf að panta tíma í, til að koma að verlsa. Ég fór nú ekki..eitthvað sagði mér að ég myndi nú varla geta keypt mikið fyrir 20 dollarana sem ég átti í veskinu. haha.

Á þessari götu er einmitt búðin sem Julia Roberts er vinsamlegast beðin að yfirgefa í Pretty Woman. Sáum líka hótelið sem var í þeirri mynd, stigann sem Richard Gere klifrar upp í í lokin og hornið á Hollywood búllívard þar sem hann pikkaði hana upp í byrjun myndarinnar. Allt saman rosa gaman.

Eftir þessa æsispennandi ferð vorum við nú ekki alveg vissar hvað gera skyldi næst þannig að við fengum okkur bara hádegsmat (á California pizza kitchen, hvað annað) enda klukkan rétt að verða eitt. Fórum svo upp á hótel í smá afslöppun og fór ég að lesa guide bókina mína góðu, um hvað væri hægt að gera. Fann þar mjög áhugaverðan skoðunartúr um Warner Bros stúdíó þar sem maður fengi meðal annars að sjá leikmuni úr FRIENDS...og þið sem þekkið mig vitið að ég er forfallin FRIENDS aðdáandi. Stína hringdi og komst að því að síðasti túrinn væri farinn klukkan 4 og var klukkan þá 2:30. Við hlupum út, þar sem þetta stúdíó er í öðrum bæ. Reyndum að fá einhverjar upplýsingar hjá vitlausri konu í lobbíinu um það hvernig best væri að koma sér þangað, hún vissi lítið, vissi þó að best væri að taka lestina, sem við gerðum en þegar við komum í bæinn vissum við ekkert hvert átti að fara. Höfðum fengið þær upplýsingar að þetta væri aðeins 5 mín labb, en þegar við spurðum gangandi vegfaranda til vegar sagði hún okkur að þetta væri allavegana 20 mín ganga en var ekki alveg viss í hvaða átt þó. Klukkan tifaði, aðeins 45 mín til stefni því að svona lestervesen tekur alltaf sinn tíma. Ákváðum að taka bara taxa. Þurftum reyndar að bíða helling eftir honum og var klukkan orðin 3:30 þegar við loksins náðum einum, sem var svo einhvernveginn ekki alveg viss um hvert hann var að fara en endaði þó á réttum stað kl. 3:50, við hlupum inn og hvað haldiði..jájá ennþá til miðar í túrinn!..fjúff. Þið trúið því ekki hvað mig langaði mikið í þessa ferð. Hefði virkilega grátið bara hefði ég ekki komist með. En svo var nú aldeilis ekki.

Og ekki skemmdi það nú fyrir, sérstaklega eftir Tom Cruise vonbrigðin fyrr um daginn, að við sáum eina fræga þarna á meðan við biðum. Eða kannski ekki fræga en svona semífræga, já eða meira kannski svona þekkta..hmm....jæja við sáum hana Jamie Luner. Hún lék rauðhærðu "bitchina" í Melrose Place...

já gott fólk, sá hana með eigin augum:o)..hahaha. Við komumst nú reyndar að því eftir google athugun að hún hefur leikið í fullt af þáttum og myndum og svona, bara ekki búin að "meikaða"ennþá. En það kemur, jájá ekki spurning. Hef fulla trú á henni.

En aftur að túrnum góða. úff úff úff. Sáum rosalega mikið. Til dæmis svona gervigötu þar sem er búið að búa til götu bara með gervihúsum sem líta út eins og alvöru hús. Þar var til dæmis tekið upp atriðið í Friends þar sem Pheobe er að heimsækja pabba sinn í fyrsta skipti, leggur fyrir utan húsið hans þar sem er brjálaður hundur og hún keyrir óvart á hann. Svo eru Gilmore girls þættirnir teknir upp þarna. Þarna var líka gervi miðbær og ýmislegt. Við fengum að sjá bílana sem notaðir voru í Batman, Scoopy Doo, Harry Potter o.fl. Fengum að sjá hvar allir leikmunir eru búnir til o.þ.h. Sáum George Lopez stúdíóð þar sem þeir þættir eru teknir upp. Fórum´inn í ER spítalann (Bráðavaktina) og sáum allt saman þar. fórum inn á leikmunasafn þar sem var fullt af allskonar dóti, meðal annars frá FRIENDS!! hurðin hennar Monicu (sem við snertum..var sko svona bannað að snerta safn og fullt af vörðum..en við´"rákumst" aðeins í hurðahúninn), eldhúsborðið og stólarnir, fúsboll borðið, hvíti hundurinn hans Joey, science boy, gosið sem Pheobe fann þumalinn í, ísskápurinn hennar Monicu (sem við rákumst líka alveg óvart í) og margt fleira!!!...hljómar kannski ekki merkilegt fyrir ykkur sem ekki dýrkið Friends eins og ég..en jii þetta var eins og himnaríki fyrir mig!!! Heyrðu og hvað haldiði..Við' fórum inn í Central Perk stúdíóið (kaffihúsið) þar sem þau eru alltaf og fengum að setjast í sófann!!!..í FRIENDS SÓFANN!!!!!!!...AAAHHHHH..það var næstum því búið að líða yfir mig ég get svo svarið það. úff úff úff. trúi þessu ekki ennþá.

En þetta var semsagt rosalega skemmtilegt og mæli ég með því að ef þið verðið stödd í Hollywood einhvern daginn að kíkja á þetta. Bara snilld.

Um kvöldið gerðum við nú ekki mikið enda uppgefnar eftir viðburðaríkan og frábæran dag. Fengum okkur nú samt að borða og röltum um hverfið..enda 10 skrefum frá öllu, ekki gleyma því!

Dagur 3

Vöknuðum snemma pökkuðum og tjékkuðum okkur út þar sem við vorum að fara um hádegi til San Francisco. Fórum samt fyrst og tókum myndir á hollywood búllívard, handa - og fótaförunum og fleiru merkilegu sem við áttum eftir að taka myndir af. Fengum okkur svo hádegismat og um 12:30 kom svo bíll að sækja okkur á hótelið. Vorum bara fínar á því í þetta skiptið, ekkert rútuvesen heldur bara ´bíll beint út á völl. Ekki amalegt það. Vorum reyndar komnar aðeins í fyrra lagi þannig að við tók bið á flugvellinum í ca. 2 tíma, en það var alltílagi því veðrið var yndislegt þannig að við sátum bara úti og höfðum það gott.

Flugið okkar var svo klukkan 3:30 og vorum við lentar í San Francisco um 5 leytið...

en jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili...segi ykkur frá San Francisco næst þannig að bíðið spennt!!!

ætlaði að vera löngu búin að setja inn myndir, en eitthvað er að myndavélinni eða tölvunni, get bara ekki sett þær inn á tölvuna, en fer að vinna betur í því núna. Getið kíkt á Stínu blogg www.blog.central.is/kristiniboston og séð nokkrar myndir..

og svo þarf ég náttúrulega ekki að minna á kommentin..blikk blikk

´

ætlaði líka að setja mynd af Jamie Luner hérna inn svo þið mynduð vita hver þetta er, en ég man ekkert hvernig á að gera það..stína þú verður semsagt að kenna mér aftur...en googlið hana endilega..veðja að þið vitið pottþétt hver þetta er.

 

Erla

 

Redding, redding.. hérna er skvísan:

þið hljótið nú að muna eftir henni.. Lexi í Melrose Place. Klassík.


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 20:36:42 / erlad

California dreaming..Welcome to the hotel California..if you´re going to san fransisco...

...góð lög

jæjajá allt að gerast.

Var að koma heim úr tveggja vikna "fríi" með familíunni. Vorum á Cape cod í strandarbæ í sumarbústað með stórfjölskyldu Sharon. Ágætt alveg hreint. Fínt að vera í 30 sek. fjarlægð frá ströndinni og einnig að fá smá svona sumarbústaðarfíling þar sem ekki verður mikið um sumarbústaðaferðir hjá mér þetta árið! Reyndar komin með grænar af öllum fjölskyldumeðlimum í augnablikinu. Búin að fá nóg af þeim. En það er líka allt í lagi því ég er að fara til CALIFORNÍU eldsnemma í fyrramálið.

Ég og Kristín fljúgum semsagt klukkan 6:15am til Long Beach og einhvernveginn ætlum við að koma okkur yfir til Hollywood (seinni tíma vandamál) þar sem við ætlum að skemmta okkur með fræga fólkinu í tvo daga. Doldið kúl. Svo er ferðinni heitið til San Fransisco á þriðjudaginn og þar ætlum við að hitta ennþá meira frægt fólk og náttúrulega gera allt sem ekta túristar gera. Ekki alveg komið á hreint þó hvað. Hef litla hugmynd um hvað er ´hægt að gera þar. hmm...en þetta kemur allt í ljós..jájá....þetta reeedddast. Á miðvikudaginn kemur Jess svo og hittir okkur í San Fr...gaman gaman Á laugardasgmorguninn fer Stína svo heim..ég og Jess í vínsmökkun í Napa..hahaha..eina planið hingað til....nei reyndar á miðvikudaginn ætlum ég og Stína að leigja svona einhverskonar go-kart bíl sem fer víst með mann um alla borgina og útvarpið' er svona guide....já það verður sko stuð. .en svo förum ég og Jess heim með kvöldfluginu. Stína fer heim fyrr því snemma á sunnudeginum er hún að fara með familíunni til Palm Beach á Flórída.

Hef ekki meiri tíma til að skrifa núna. Eins og alltaf er pökkun á síðustu stundu, því ég þarf að vera tilbúin fyrir klukkan 6 því planið var að fara út að borða og í bíó í kvöld. En við megum samt ekki vera of seint á ferð þar sem við þurfum að vakna um 4 leytið!

Farin til Californiu...


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 02:47:08 / erlad

..engin helv.. rúta, það verður langferðabíll

ég veit ég veit ég veit..kominn nærstum mánuður síðan ég bloggaði síðast. En eins og ég er alltaf að segja ykkur þá er ég bissí leidí...og letingi á köflum, þess vegna hefur ekki mikið gerst á þessari síðu síðustu vikur. En ég ætla nú heldur betur að bæta úr því núna, enda nokkuð mikið búið að vera að gerast í júní.

Fer reyndar frekar hratt yfir sögu vegna þess að annars yrði þetta nokkra blaðsíðna blogg sem enginn myndi nenna að lesa...

..en byrjum á byrjuninni.

Ásdís og Co. kíktu til mín í viku sem var alveg frábært. Sérstaklega að sjá litla engilinn minn hann Kristján Rafn sem var sko bara alls ekki svo lítill lengur, heldur bara risa stór. Kannski ekki skrítið þar sem kúturinn var 7 vikna þegar ég fór en 7 mánaða núna. Eðlilegt að hann sé búinn að stækka aðeins..Æðislegur.

En við semsagt höfðum það rosa gott þessa viku, gerðum alveg heilan helling.

Til dæmis:

- versla..var að tala við Stísu í dag og hún skilur bara ekkert í vísareikningnum sem lét sjá sig í dag..mér datt kannski í hug að hann gæti kannski jafnvel mögulega tengst eitthvað aðeins því að við komu voru það 2 stórar ferðatöskur, við brottför 4 stórar ferðatöskur og samt komst ekki allt fyrir þannig að ennþá er eitthvað af þeirra dóti hér..en þetta er náttúrulega bara ágiskun, gæti verið einhver önnur ástæða..huhumm

- fórum í keilu..rosa gaman..Oddur var einstaklega lélegur sem lét okkur systur líta út fyrir að vera einstaklega góðar..bara gaman..og Stjáni litli skemmti sér líka konunglega

-borðuðum úti ...cheescake, Calif. p.k., Cheers...allir þessir helstu staðir teknir

- kíktum heilan dag í skemmtigarðinn Six Flags sem er hérna í tveggja tíma fjarlægð. Rosa skemmtilegur. Svona tívolí / vatnsrennibrauta / skemmtigarður, þar sem ýmislegt var brallað..farið í rússíbana (ekki ég reyndar, þurfti nebbla að passa, annars hefði ég pottþétt farið sko, þori alveg í svona..hmm..)..farið í allskonar kastidót þar sem við unnum alveg helling af böngsum fyrir Stjána litla..létum teikna skopmynd af okkur öllum..og bara röltum um og höfðum gaman.

- Fórum á museum of science..Stjáni ekki alveg að fíla það, en fyrir utan það var þetta mjög gaman.

- Röltum um allt downtown Boston í yndislegu veðri og kíktum svo upp í Prudential turninn sem er svona útsýnisturn á 50. hæð, rosa flott..

- og svo bara var talað, hlegið, gengið um Winchester, leikið úti í góða veðrinu og ýmislegt annað..Allt rosalega skemmtilegt...

Og svo var það djammið..já..ég djammaði ekki einu sinni, ekki tvisvar heldur þrisvar í Júní!!!..ja eða djamm og ekki djamm. Var allavegna ekki ökuhæf.

En semsagt á 17 júní fórum ég, Stína Rut og Jess út á lífið til að fagna þjóðhátíðardeginum með stæl. Kíktum á mjög skemmtilegan karioki stað í Cambridge með allskonar fólki, ekta pöbba stemning og þið vitið nú hvað mér finnst svoleiðis gaman. Sungum þar hæ hó jibbí jei og jibbí jei einsog sönnum íslendingum sæmir. Reyndar ekki í karioki græjurnar heldur bara svona fyrir gesti og gangandi og var okkur tekið undarlega vel verð ég að segja. En við skemmtum okkur allar konunglega og tókum íslendinginn á þetta og vorum ekki komnar heim fyrr en að ganga 5...allt íslenskt á þjóhátíðadaginn.

Djamm númer 2 var partý hjá Au pair stelpu sem heitir Sally og er frá Ástralíu. Hún býr í bæ sem er 45 mín frá þannig að þetta var svona sleepover partý. Hitti þar fullt af miskemmtilegum au pair stelpum og svo 4 miður skemmtilega Ameríkana. Og þegar ég segi miður skemmtilega, meina ég hrikalega!!! Þetta voru semsagt fjórir amerískir strákar sem Sally hafði kynnst. Einn þeirra var alveg eins og Stiffler í American pie..eða samt miklu verri. Sagði fokking og dúd í hverri einustu setningu, var í hvítum buxum og opinni skyrtu niðrá nabbla. Talaði með hræðilegri röddu og var að farast úr sjálfsdýrkun. Rosalega erfitt að útskýra hvernig hann var..get bara fullyrt það að enginn af ykkur hefði þolað hann!. og svo var það dvergurinn vinur hans..hann var ca. 152 cm á hæð..ef hann náði því þá. Hélt líka að hann væri flottastur í heimi með eins talsmáta og takta/stæla og vinurinn.." So dude wats Iceland like you´no"..nei takk ekki fyrir mig..!!!..einstaklega asnalegir þessir amerísku strákar..vinir þeirra tveir voru nú ekki svona slæmir en engir hottí samt. En þetta var fínasta partý engu að síður.

Djamm númer 3..eða við skulum segja "djamm" númer 3 var þega Eddi kom um síðustu helgi og ég og Stína fórum með honum út að borða og sátum svo yfir drykk og spjalli fram yfir miðnætti..voða gaman hjá okkur. já maður er soddan djammari...

Eddi er einmitt búinn að vera tíður gestur hérna í Boston þar sem hann kom hingað á þriðjudag til miðvikudag og svo aftur á laugardag til sunnudags. Á þriðjudagskvöldið kíktm við ásamt Stínu Rut út að borða og í göngutúr um Boston í 20 stiga hitanum sem var ennþá um kvöldið..og svo á miðvikudeginum var glampandi sól og blíða og hvað haldiði að við höfum gert..jújú ég og Stína kíktum til Edda, þar sem er sundlaug og bekkir og bara algjör spánarstemning uppi á þakinu á hótelinu!..var alveg geggjað! lágum þarna i sólinni og létum þjóna okkur, kíktum í lunch og héldum svo bara áfram að liggja. Er reyndar búið að kosta sitt fyrir mig og mína ljósu húð þar sem ég skaðbrann alveg hreint og þar af leiðandi er aloe vera after sun gel spray búið að vera minn besti vinur síðustu daga. En þetta var nú þess virði samt. Eddi kom svo aftur á laugardagskvöldið eins og sagði áðan, en á sunnudeginum kíktum við svo ásamt Stínu og Jess í road trip til Rhode Island. Rosa stuð hjá okkur. "Hver er maðurinn" sló alveg í gegn í bílnum enda 2 tíma keyrsla hvora leið. Eddi reyndar alveg einstaklega lélegur í honum..og nokkuð tapsár líka..en hann hætti á toppnum. Á Rhode Island fórum við í bæ sem heitir Newport, fengum okkur lunch þar og kíktum svo á gömul "sumarhús" sem ríkir kallar í gamla daga áttu. Fórum í guidaðan túr um eitt húsið sem var sko risa risa stórt og rosalega flott..erfitt að lýsa því ..en þetta var notað í eldgamla daga þegar konur voru í síðkjólum og æ þið vitið...þetta var svona eins og að vera staddur í bíómynd sem átti að gerast á svona óðalsetri..eða hvað sem það er nú kallað. Mjög fróðlegt og skemmtilegt. röltum svo aðeins þarna um og sáum nokkur önnur hús, bara utanfrá reyndar, en rosa flott. En eyddum í þetta heilum degi sem var vel þess virði.

Eftir 4 daga er ég svo að fara á Cape cod ásamt fjölskyldunni. verðum í húsi rétt hjá ströndinni ..verður stuð. En stuðið byrjar svo fyrir alvöru tveim vikum seinna því þá förum við til Californiu!!! það verður rosalegt..

en jæja nenni ekki að skrifa meira..var að lesa þetta yfir og þetta er alveg einstaklega leiðinleg færsla..en þið vonandi fyrirgefið mér það..er ekki búin að komast í neitt skrif stuð..

set svo myndir bráðum..get bara ekki verið lengur í tölvunni núna..komin með grænar

gangiði hægt um gleðinnar dyr svona þar sem fyrsta helgin í júlí er framundan og er hún þekkt fyrir allt annað en rólegheit

Erla

ps. heyrðu ég gleymdi næstum.. leikkonan sem leikur Susan í nágrönnum..Susan Kennedy sem var gift Carl kennedy..hún er lesbía in real life!!!...og Joe fyrrverandi maðurinn hennar hvað hét hún aftur..klippikonan..pabbi Felicity..hann var rekinn úr þáttunum vegna þess að hann var tekinn með einhver ólögleg lyf... já ekki slæmt að eiga ástralska vinkonu ...hmm....þannig að ef ykkur langar í meira slúður um nágranna þá bara bjalliði


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 20:12:16 / erlad

gleði gleði gleði

..Ásdís og co. á leiðinni..lenda eftir 1 og hálfann tíma!!! sjaldan verið jafn spennt!

..ég búin að vera í USA í 6 mánuði, þar af leiðandi hálfnuð

..Löng og ennþá leiðinlegri helgi en sú síðasta, að baki

..búinn að losna við stress og hnúta í baki í brjáluðu nuddi í dag

..Elva Árnad. á ammæli ..21 árs skvísan..innilega til hamingju með það Elva mín..

Ekkert nema gleði

Erla


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 15:26:37 / erlad

Það verður ekkert eftir af þessari á morgun...

Sæl veriði

Hef nú ekki mikið að segja ykkur núna. Fannst samt vera kominn tími á smá skrif.

Maí mánuður er búinn að vera alveg einstaklega lengi að líða og bíð ég með mikilli tilhlökkun eftir að júní láti sjá sig. Afhverju? Jú nefninlega í fyrsta lagi þá eru Ásdís, Oddur og Kristján Rafn að koma í heimsókn 5. júní, mikil hamingja..í örðu lagi þá er maí búinn að vera leiðinlegur mánuður, gerði ekkert merkilegt og mikil vinna..mikil óhamingja. Í þriðja lagi þá er ég búin að vera í hérna í 6 mánuði einmitt sama dag og Stísa og co koma, 5 júní....6 mánuði!!!..það er nú doldið ..hálft ár..þá get ég farið að telja niður..jibbí!

Svo var þessi helgi einstaklega leiðinleg. Eða kannski ekki leiðinleg en löng. Amman og afin voru hérna með mér að passa krakkana því foreldrarnir skelltu sér til Californíu. Þau eru reyndar indælisfólk (amman og afinn sko) en vissu voða lítið í hvorn fótinn þau áttu að stíga hérna, sem gerði það að verkum að ég var að vinna nánast alla helgina. Fúlt. Ennþá fúlla (segir maður það?) samt að enginn var heima hérna sem gat gert eitthvað með mér þennan litla tíma sem ég var ekki að vinna. Kristín á Bahamas, Jess í Maine og Emily í Vermont. Fyrsta skipti sem það kom sér illa hvað ég hef verið léleg við að eignast nýja vini hérna. Eða semsagt hringja í nýjar au pair stelpur, bjóða þær velkomnar og verða vinkona þeirra. Hef bara ekki nennt að standa í því. En ég varð þar af leiðandi bara að hanga heima og gera ekki neitt alla helgina, því eins og flestir vita þá bara get ég ómögulega gert eitthvað ein eins og farið í bíó, út að borða og þess háttar. Vantar sjálfstæðið þar.

Reyndar er ég að ljúga aðeins því ég fór út á föstudagskvöldið og hitti hana Sigurjónu au pair í Californíu. Hún hafði verið í vikuferðalagi um austurströndina og endaði í Boston á föstudeginum, þannig að það var æðislegt að geta kíkt aðeins út og náttúrulega frábært að við gátum hisst, höfðum um nóg að tala, rosa gaman....enda ekkert skemmtilegra en að hitta íslendinga í útlöndum.

Já og ekki má gleyma öllum gestagangnum hjá mér um helgina. Allt óboðnir gestir þó sem gerði það að verkum að mér líkaði ekki vel við þá. Þannig að ég drap þá. ....

Nei ég er ekki gengin af göflunum hér og farin að drepa saklaust fólk sem dettur í hug að droppa í kaffi svona surprise heldur voru þetta maurar. MAURAR!!!..ooooojjjjjjj... ef það er eitthvað sem ég hata þá eru það skordýr og annar svoleiðis viðbjóður.

Var bara í gúddí fíling hérna inn í herbergi að tala við pabba kallinn á laugardagskvöldið þegar ég sé þetta stærðarinnar kvikindi (sko stærri en stór húsfluga) vappa hér um rúmið mitt, bara eins og ekkert sé!!!...Ætlaði aldrei að geta sofnað því ég var alveg viss um að það væri annar maur þarna einhversstaðar og ég myndi vakna við það að hann væri að skríða á andlitinu á mér. Sofnaði þó fyrir rest og vaknaði bara við vekjaraklukkuna..ekki maur. En svo á sunnudagskvöldið´rétt áður en ég ætlaði að fara að koma mér í háttinn sá ég annan..og annan..já það voru tveir maurar!!!...önnur nokkra klukkustunda andvaka tók við vegna hræðslu. Svo í morgun eftir að ég skutlaði krökkunum í skólanum fór ég að taka til í herberginu mínu..já dugnaður í manni alltaf...og var þá ekki bara fjórði maurinn á gólfinu!!!..þetta er eitthvað sem ég ekki þoli og er orðinn enn ástfangnari af Íslandinu góða en ég var áður, eftir þessa mauraheimsóknir!

jæja komið gott..er ekki ennþá komin niðrá blaðsíðu tvö í wordinu ..í fyrsta skipti held ég bara svei mér þá. Þannig að ég ætla að hætta núna áður en það gerist, enda sagði ég í upphafi að þetta yrðu smá skrif.

Erla

Heyrðu smá leikur..úr hvaða mynd er þessi setning hérna í titlinum....allir að giska..vei gaman.. En Stísa þú mátt eiginlega samt ekki vera með því þú veist þetta allt saman. Ekki nema að þú vitir það ekki og þurfir að giska eða ef enginn á eftir að giska (sem ég trúi nú ekki upp á ykkur) þá máttu skrifa svarið svo þetta líti ekki út fyrir að vera ömulegur leikur hjá mér sem enginn tekur þátt í ......ókídókíkaríókí


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 05:33:16 / erlad

Tóti tölvukall

Ég er fíkill....internetfíkill...komst að því í gær. Það var nefninlega internetlaust hérna hjá okkur nánast allan gærdag og ég vissi ekki hvert ég ætlaði! Allt sem mig langaði að gera allt í einu tengdist internetinu. Gleymdi því líka reglulega að ekkert internet var á tölvunni minni þannig að reglulega varð ég fyrir vonbrigðum yfir því að komast ekki á netið!

Ætlaði að kíkja á hvað væri í bíó..neibb gat það ekki, það var á netinu. Gat ekki tjékkað á veðurspánni, gat ekki séð Silvíu Nótt í Eurovision, var ekki búin að sjá það.. það var á internetinu. Gat ekki farið bloggsíðuhring..internetið. Jæja ég hringi þá kannski bara í einhvern heima..heyrðu nei það er náttúrulega á skype sem er í gegnum internetið! vá. Aldrei datt mér í hug að ég gæti orðið svona háð netinu!..

Hvernig ætli heimurinn verði eftir 10, 20, 50 ár...allt í gegnum internetið. Ef það ákveður að virka síðan ekki svona í einn dag þá lamast bara þjóðfélagið. Núna er meira að segja ýmislegt sem ekki gengur án internetsins og bara tölvna (beygist það svona?) yfir höfuð.

Ég veit ekki hvort mér líki þessi tölvuþróun. Allt tölvustýrt. Nei ekki minn stíll. En það er víst framtíðin. Rosalega þægileg samt. En einhvernveginn ekki rétt að draga frá gluggunum, kveikja ljósin og opna skápa í gegnum tölvubúnað...æ ég veit ekki..

en sumsé var ég algjörlega aðgerðarlaus í internetleysinu í gær, leiðinlegt veður og ekkert að gera...en mundi þá eftri myndum sem ég hafði sett á disk áður en ég kom hingað, til að taka með mér út og fór að flokka þær og skoða.

Veit ekki alveg hvað réð ferðinni þegar ég valdi myndir til að setja á þennan disk þar sem þær eru úr öllum áttum og margar hverjar ótrúlega ómerkilegar. Líklega hef ég verið á síðustu stundu (undarlegt!!)..að setja þessar myndir á disk þar sem mig langaði taka einhverjar myndir með mér og bara valið þetta svona handahófskennt!

En semsagt þá er ég búin að setja inn nokkrar myndir hérna undir nýjum tengli sem heitir "Myndir 2005" (neðst) þannig að þið getið skoðað þetta...aldrei að vita nema að þú finnir mynd af þér þarna:)

Set jafnvel inn fleiri myndir hérna við tækifæri..

en jæja ætla að hætta núna...er akkúrat ekki í neinu bloggstuði og pirruð yfir því hvað ég er alltaf heimsk á sunnudögum að sofa til hádegis og liggja svo andvaka um kvöldið og telja niður klukkutímana sem ég næ að sofa áður en klukkan hringir..í augnablikinu eru þeir 5 og ég ekki einu sinni orðin þreytt!!!...ooohh...heimska ég!!!

 

jæja er farin að telja rollur...á það ekki alltaf að virka þegar maður nær ekki að sofna?..prufa það

Erla


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 19:45:04 / erlad

Raindrops keep falling on my head..tralllallalla..

Já hér bara rignir!...Búið að vera hellidemba í heila viku og samkvæmt spánni verður hellidemba alla næstu viku!..ussumsvei. Það þýðir þó ekki að grenja yfir því enda er enginn verri þó hann vökkni ..eða svo segja menn

Ég hef nú ekki mikið að segja ykkur núna. Ekkert stórfenglegt búið að gerast. Bara vinna og bíó.. að ógleymdum þeim fjölmörgu göngutúrum sem ég og Stína höfum tekið, áður en veðurguðirnar ákváðu að demba svona hressilega á okkur.

Jamm og jæja...

Þið sem lesið bloggið hjá Kristínu Rut eruð væntanlega búin að bíða eftir mögnuðu sögunni um hjólið, bílinn og manninn, sem Stína benti ykkur á að ég ætlaði að blogga um!!!..

...úff..rosalegt...ég er bara ekki söm eftir þetta!!!..var nálægt því að fá mér áfallahjálp, gerði það þó ekki...en sjokkeruð var ég. Og Stína og Jess! Við vorum semsagt bara í góðum gír nýkomnar úr göngutúr á Harvard Sq. á þessu blíðskapar föstudagskvöldi. Stigum upp í bílinn minn og lögðum í hann. Þegar við vorum stopp á rauðu ljósi sáum við skyndilega mann hjóla fyrir bíl...eða kannski bíl hjóla á mann öllu heldur þar sem bíllinn var að keyra á móti umferð á einstefnugötu og átti greyið hjólamaðurinn væntanlega ekki von á bíl úr þessari átt. Bíllinn semsagt keyrði á hjólreiðamanninn sem flaug marga metra upp í loftið og endaði á jörðinni!..úff...og við sáum þetta allt með eigin augum. Maðuinn lá meðvitindalaus á götunni og allir byrjuðu að panikka af hræðslu, enginn vissi hvað gera skyldi. Skyndilega stökk Kristín Rut út úr bílnum...hljóp að manninum og öskraði..ALLIR FRÁ..ÞAÐ GENGUR EKKERT NEMA MUNN VIÐ MUNN Á MANNINN..SJÁIÐI EKKI AÐ HANN ER HÆTTUR AÐ ANDA!!!...með miklu offosi byrjaði stína að blása í manninn, reyndi eins og hún gat..en ekkert gékk...þá var komið að hnoðinu og fékk Kristín einhvern útigangsmann til að hjálpa sér. Enginn annar hafði kjark í það þar sem maður er hiklaust kærður hérna í Ameríkunni ef maður gerir eitthvað vitlaust, þó að maður sé að reyna að bjarga fólki, eins og Stína í þessu tilfelli. En útigangsmaðurinn hefur nú varla miklu að tapa... 1..2..3..4..5 og blása!!!...Kristín og útigangsmaðurinn héldu áfram að reyna að bjarga vesalings manninum. 1..2..3..4..5. og blása!...En allt kom fyrir ekki..maðurinn hafði það ekki af..og eftir sat Kristín ein úti á götu öskrandi WHY GOD...WHY!!!!

Já hlutirnir gerast hérna í Ameríkunni skal ég segja ykkur...hmm...heldur betur.. kryddaði söguna kannski smá...ja eða svona doldið..í öðrum orðum vorum við á rauðu ljósi sáum bíl koma úr öfugri átt keyra á mann á hjóli. Hjólamaðurinn flaug ca. 20 cm upp í loftið, stóð svo upp..kveinkaði sér aðeins..maðurinn úr bílnum steig út og þeir fóru að rífast. Veit ekki um hvað þar sem ég var inn í bíl og það var komið grænt hjá mér þannig að við héldum áfram að keyra. Varð bara að reyna að gera þessa sögu smá spennandi þar sem Stína var líklega búin að byggja upp miklar væntingar hjá ykkur..eins lítið spennandi og alvöru sagan var...eða svona..reyndar ekki á hverjum degi sem maður sér bíl keyra á hjólamann...þannig að þetta var nú svona vægt sjokk...en heyrðu nóg um það.

Kristín vildi endilega að ég talaði um hana í þessum pistli þannig að ég bara held áfram......Fórum nefninlega í bíó um daginn á einstaklega undarlega mynd, sem að sjálfsögðu Stína valdi..þriðja myndin á mjög skömmum tíma sem við sjáum sem er bara algjört bull..sem hún velur.. þessi hét Hard Candy..get eiginlega ekki sagt neitt um hana samt..jú góðir leikarar reyndar..óþekktir en voru mjög góðir...en alveg einstaklega geðsjúk mynd. Þannig að ef þið eruð einhverntímann í crazy skapi..þá er hún ábyggilega fín...Boðskapurinn er semsagt...´hugsiði ykkur tvisvar um áður en Stína biður ykkur að koma með sér í bíó á mynd sem hún velur

Heyriði svo er ég líka að fara til Hollywood og San Francisco!!!..hvursu kúl er það spyr ég nú bara??!!! ég og stína semsagt fljúgum til Hollywood, verðum þar í 2 nætur, fljúgum þá til San Francisco og verðum þar í 4 nætur..og Jess hittir okkur þar..ROSA STUÐ!!!

Svo eru Ásdís, Oddur og Kristján Rafn að koma í heimsókn eftir 3 vikur!!!...sef varla á nóttunni fyrir spenningi!!! enda ekki búin að sjá drenginn síðan hann var tæplega 2 mánaða...er að verða 7 mánaða í næstu viku!

Já eins og ég segi allt að gerast í Ameríkunni!

Merkilegt..ég skrifa alltaf bloggin á Word færslu..og alltaf tekst mér að fara á blaðsíðu 2...Merkilegt

er að fara á tjúttið í kvöld....þið sem eruð´líka að fara á tjúttið endilega látið mig vita því´ég á símakort sem gerir það að verkum að ég get hringt til íslands úr gemsanum mínum..og þið vitið nú hvað er alltaf gaman að tala saman þegar maður er á tjúttinu..

Erla


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 15:30:34 / erlad

Páskar

Páskarnir eru nú ekki mjög stór hátið hérna í Ameríkunni, að minnsta kosti ekki hjá minni fjölskyldu. Ekkert frí á Skírdag og Föstudaginn langa, en frí annan i páskum. Undarlegt að fyrir fólk eins og þau, sem fara í kirkju alla sunnudaga (hvort að það sé til þess að sýnast eða vegna sterkrar trúar veit ég ekki) séu páskarnir ekki stærri en þetta. Íslendingar fara í kirkju að meðaltali einu sinni á ári. Að minnsta kosti þeir sem ég þekki. Samt höldum við upp á páskana á ofur kristilegan hátt. Merkilegt.

En hvað sem því líður þá voru þetta fínir páskar þar sem Dagný og Elva frænkur mínar kíktu í heimsókn frá fimmtudegi til miðvikudags. Björguðu alveg páskunum. En semsagt við höfðum það mjög skemmtilegt saman, mikið verslað að sjálfsögðu eins og sönnum Íslendingum sæmir, þó að kortið hafi nú ekki einu sinni náð að volgna hjá mér í þetta skiptið. Eingöngu þó vegna fátæktar, ekki hófsemi. En frænkur mínar sáu nú til þess að efnahagur Bandaríkjanna færi batnandi. En það var ekki bara verslað. Mikið var borðað líka, Cheescake Factory klikkar aldrei enda fórum við þangað nokkrum sinnum, þó að Elva hafi nú orðið fyrir smá vonbrigðum með matinn. Ástæðan samt örugglega sú að ég og Dagný vorum búnar að byggja upp ofurvæntingar hjá henni með öllu talinu um hvað þessi staður væri góður. En henni fannst hann ekkert vondur sko, enda gengi hún nú ekki heil til skógar ef svo væri.

Keilumeistari Boston var svo líka krýndur og var það Elva sem hampaði titlinum, naumlega þó!

Kíktum líka í bíó á svona lala myndir...ágætis afþreying.

En talandi um bíómyndir..aldrei aldrei aldrei sjá mynd sem heitir V for Vendetta, undarleg og skrítin og klikkuð og leiðinleg. En aftur á móti mæli ég sterklega með mynd sem heitir Unitd 93. Er um 11 September. Mjög góð mynd. Átti bara erfitt með að jafna mig eftir hana, hún er svo áhrifarík.

En nóg um bíómyndir. Páskadagur var sérstakur en þó nokkuð hefðbundinn. Um hádegi vöknuðum við og gerðumst hinar íslensku páskakanínur og dreifðum íslenskum páskaeggjum, þar sem pabbi hafði verið svo elskulegur og keypt páskaegg handa öllu liðinu..þannig að það voru 7 stykki páskaegg fyrir familíuna (amman og afinn voru í heimsókn) , 3 fyrir okkur og eitt fyrir Jess. Einmitt soldið gaman að segja frá því að pabbi var orðinn þekktur í Bónus sem páskaeggjakallinn....Þegar mamma og pabbi komu í heimsókn í mars komu þau með páskaegg handa mér og krökkunum. Þegar ég vissi svo að Dagný væri að fara að koma þá fór pabbi út í Bónus og keypti fyrir hana líka. Svo mundi ég eftir því að húsmóðirin hér á heimilinu er óttalega mikill krakki oft á tíðum og gæti auðveldlega farið í fýlu ef hún myndi ekki fá páskaegg, ja eða bara stolið eggjunum af krökkunum og nú er ég ekki að grínast, annað eins hefur gerst hér, þannig að pabbi var sendur út í Bónus til að kaupa tvö í viðbót. Stuttu seinna kom það upp að Elva kæmi líka í heimsókn og að sjálfsögðu þyrfti hún nú að fá eitt stykki páskaegg og jafnvel væri ekki vitlaust að kaupa eitt fyrir Jess líka svona til að leyfa henni að upplifa smá íslenska páska. Pabbi út í Bónus. En svo fór ég að hugsa, þar sem amman og afinn myndu vera hérna um páskana þá yrði nú hálfleiðinlegt að skilja þau út undan, pabbi var sammála. Pabbi út í Bónus. Útkoman; 7 páskaegg númer 6 ásamt hinum sem mamma og pabbi komu með...skemmtileg lítil páskasaga.. ..

en semsagt allir urðu voða glaðir með þetta. Páskakanínan, sem komið hafði um nóttina og falið páskakörfur fyrir krakkana hafði víst vitað af mér og falið eina fyrir mig líka. Þannig að ég fékk að leita af minni páskakörfu, ekki ólíkt páskaeggjaleitinni upp í sumó. Gaman af því.

Um kvöldið var svo páskakvöldverðurinn borðaður í borðstofunni, sem þykja tíðindi hér á bæ. Þegar allir voru sestir vildi afinn að það yrði farið með borðbæn og bað Kalla að segja hana. Strákarnir flissuðu eitthvað yfir þessu og fannst þetta fyndið, en þeir voru sussaðir niður um leið. Ég aftur á móti hef aldrei tekið þátt í borðbæn áður og fannst þetta ógeðslega fyndið og átti mjög bágt með mig. Ekki hjálpaði það að horfa á Elvu sem sat beint á móti mér, milli afans og pabbans, halda í hendurnar á þeim með lokuð augun og lifa sig inni í þetta. Það var farið að tísta í mér ég átti svo bágt með mig, en ég er nú vel uppalin og kann mig alveg þannig að ég náði að kæfa hláturinn. Ég veit að það er ekki fyndið að segja frá þessi, en að vera þarna..úff...varð hlátursefni ferðarinnar. Ægilega gaman!

Við semsagt höfðum það ægilega gaman hérna saman..

Tókum nokkrar myndir..koma inn fljótlega..

Erla


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4